Tinder

Þrátt fyrir að hafa fengið margar aðvaranir og þrátt fyrir að hafa mína eigin fordóma þá varð forvitnin  öðru yfirsterkara, þannig að ég skráði mig á tinder. Já, ég skal alveg viðurkenna að gredda átti sinn part af þessu öllu saman. 
Það tók mig smá stund að átta mig á því hvernig miðillinn virkaði. Ég "líkaði" við marga gaura einfaldlega af því að ég var að reyna að fletta.... úbbs. Ég sendi nokkur "super like" af klaufaskap og alltaf þegar ég reyndi að lesa mér til um gaurinn kom "like" af því að puttnarnir á mér hittu aldrei á rétta staðinn á skjánum. Þarna inni sá ég líka einstaklinga sem ég kannaðist við, ýmist úr nærsamfélaginu, senunni eða fortíðinni. Ég hnippti meira að segja í einn sem ég spjallaði við mikið á tímabili fyrir örugglega rúmlega 15 árum síðan. Þessi miðill hefur klárlega sitthvað með sér. 
Það hefur örugglega unnið með mér að ég var kona í leit að skemmtun og engu öðru. Enda var ég komin með 34 match eftir rúmlega sólarhring. (Mér skilst að það sé alveg ágætis frammistaða). Ég var ekki að leita að neinu sérstöku þarna inni. Jú samt, gaur sem mér þótti áhugaverður og ég væri til í að kúra hjá og gera jafnvel eitthvað meira með. Ég byrjaði eitthvað smá spjall við nokkra en spáði svo ekki meira í það. 
Þetta var á laugardegi.

Á sunnudeginum var ég bæði þreytt og löt. Ég þurfti ekki að fara á fætur og nýtti mér það. Ég teygði mig í símann og áður en ég vissi af var ég komin á spjall við einn af þessum tinder-gaurum. Útlending af bestu gerð. Eftir smá spjall, þreyfingar og daður þá kom hann færandi hendi með kaffi. Ekkert slíkt var til í kotinu, og mín orðin kaffiþyrst ofaná alsherjarletina.
 
Hálftíma seinna vorum við komin inn í rúm að leika.

Samtals fimm fullnægingum seinna og fjórum klukkustundum var hann fullklæddur og kvaddi mig við útidyrnar. Ekki ætlaði ég að láta hann fara með allt vitið úr kotinu! 

Hvað get ég sagt, Tinder er klárlega ágætt til síns brúks. Ég gæti alveg vanist svona heimasendingarþjónustu á allskonar, og kynlífi með því. 

Ummæli

Vinsælar færslur