Karlakór

Það stormaði heill karlakór inn í vinnuna mína um daginn. Allskonar menn í íslenskum þjóðbúningum, þið vitið, vestin sem eru tvíhneppt og hvítur klútur um hálsinn. Ég held að allir karlmenn líti vel út svona fötum. Hávaxnir, kurteisir og sumir hverjir mjög vel lyktandi. Testesteronið flæddi yfir svæðið.

Ég fann til mín. Ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að haga mér þegar óvelkomnar hugsanir af kynferðislegum toga ruddust svo inn í hausinn á mér. Ég gat alveg séð mig fyrir mér á milli þeirra á meðan þeir nytu þess að nota mig.... Ég varð svolítið feimin og lét bara lítið fara fyrir mér. Varð eiginlega fegin þegar ég gat laumað mér á milli þeirra út í hádegismat. 

Ég naut þess samt smá að hafa þá, það er engin lygi. 

Ummæli

Vinsælar færslur