Löngun

Suma daga langar mig í þétt og innilegt faðmlag. Ég virkilega sakna þess úr sambandinu. Að finna hendur taka þétt utanum mig og gefa eftir inn í innilegt faðmlag. Það er svolítið mikið minna um þau núna.
Aðra daga sárlega vantar mig kúr, bara að liggja við hliðina á einhverjum og... Nei, þvílík vitleysa! Ég gæti aldrei bara legið við hliðina á einhverjum. Ég yrði að snerta viðkomandi og væri agalega ófullnægð ef að viðkomandi væri ekki að halda utanum mig að minnsta kosti. Suma daga sárlega vantar mig það, í bland við koddahjalið sem fylgir oft svona kúri. Kynlíf fyrir, eftir og inn á milli, skemmir svosem ekki fyrir, en það er alls ekki nauðsynlegt í þessu dæmi. 
Enn aðra daga þrái ég að ganga lengra, að njóta einhvers, finna losta viðkomandi og gleyma mér í atlotum hans, synda um í nautn í kynlífs eða fullnægingarvímu. 

Í dag eru "aðrir dagar". Ætli Heimkaup sé með kúrufélaga til sölu? 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Því miður er kúrufélagi ekki á Heimkaup né Hópkaup, sem er svo sem í lagi þar verð umfram gæði er mottóið þar.


Held að ég hafi þó fundið lausnina fyrir þig 😇

https://images.app.goo.gl/cs55Hs6RgjAv4MwK8

Kveðja
ComputerSaysNo
Prinsessan sagði…
oooh.... Þetta er algjör snilld!
Held samt að þetta fullnægi ekki kúrþörf minni. Því miður :/

Vinsælar færslur