Aðalhlutverk í fantasíum


Ég var að skrifast á við mann á fetlife. Hann sendi mér skemmtilega fantasíu, réttara sagt tvær útgáfur af sömu fantasíunni. Í annarri útgáfunni er ég bundin niður á meðan hann heldur mér á brún fullnægingarinnar lengi vel, þangað til hann leyfir mér að fá spregjufullnæginu. Í hinni útgáfunni er ég bundin þannig að hann hafi fullan aðgang að mér á meðan hann fullnægir mér hvað eftir annað, þannig að ég geti ekki stoppað hann eða klemmt saman lærin.

Hann spurði svo í hvorri fantasíunni ég fyndi mig. Ég sagði honum að ég ætti heima í hvorugri fantasíunni, að minnsta kosti ekki miðað við þennan framgang. Hann spurði þá hverju þyrfti að breyta.

Málið er að ég fæ það ekki auðveldlega. Ég fæ það iðullega ekki nema ég sé sjálf að fitla við mig, jafnvel þó það sé einhver sem hjálpar til, meira að segja þó svo að hann geri megnið af vinnunni. Ég er að skána, það verður að segjast. Þetta gerist samt ekki bara si svona. Það er enginn að fara að láta mig fá raðfullnægingar sér til skemmtunar (ég væri til í að hitta þann aðila sé hann til), það er enginn að fara að stjórn því hvenær ég fæ það og hvenær ekki. Það er nú reyndar ekkert mál að stjórna því hvenær ég fæ það ekki, en það er ekki málið.

Hann spurði þá: En er það ekki partur af því að vera að deila myndum hér að vona að einhver fantaseri um man?

Það er nokkuð til í þessu hjá honum og ég verð alveg smá upp með mér þegar fólk hefur fantasíur um mig. Hinsvegar er ég ein heild, flæðandi og síbreytileg, með kostum og göllum. Þegar fantasíurnar samræmast ekki mér, eru þær þá sannarlega um mig? Eða kannski einhverja fantasíupersónu sem lítur út eins og ég?

Þegar ég fæ svo sendar fantasíur til mín, þar sem ég á að skarta aðalhlutverkinu, og þær eru í hrópandi mótsögn við það hvernig ég er og hvernig ég virka, þá ómar eitt risastórt villumerki í hausnum á mér. Það er óneitanlega ergjandi þar sem maður fær þessar fantasíur eflaust í þeim tilgangi að hreyfa við manni og mögulega lokka mann í bólið. 

Ykkur að segja: það sem á alls ekki við mig og er algjörlega óraunhæft fyrir mig, það hreyfir ekki við mér. Ótrúlegt! En satt.

Ummæli

Vinsælar færslur