Kynlífshagfræði


Ég var á hnjánum við rúmbrýkina. Hann kom sér fyrir og andartaki síðar fann ég hvernig limurinn hans þrýsti sér djúpt inn í mig. Með mjög smáum hreyfingum fór hann að ríða mér, hann í rauninni dró sig aldrei út, heldur þrýsti sér inn, slakaði smá og þrýsti aftur. Það var unaðslegt! En eftir smá stund af þessu þá langaði mig í meira. Ég vatt upp á mig til að sjá hann og bað hann að tala til mín á sínu móðurmáli. Það kom á hann og hann varð pínu vandræðalegur og sagði að hann væri ekki góður í því, en hann var tilbúinn að prófa. Eftir smá stund sagði hann eitthvað sem ég skyldi enganveginn en virkaði mjög vel. Röddin, tónninn og tónfallið hans náði til mín, að heyra hvernig hugarástandið og greddan birtist í röddinni hans æsti mig.

Eftirá þá lágum við í faðmlögum og ræddum þetta aðeins. Hann sagði mér að honum þætti þetta hálf kjánalegt, þar sem þetta væri eitthvað sem hann gerði ekki að staðaldri. Hann bætti samt við að ef að þetta væri eitthvað sem virkaði fyrir mig væri hann til í að gera þetta aftur. Svo sagði hann eitthvað sem vakti mig til umhugsunar: „Ef að þetta dregur 5 stig af minni upplifun, en bætir við 45 stigum hjá þér, þá erum við komin upp um 40 stig. Þá er þetta eitthvað sem við ættum að gera meira af“. Ég hef aldrei hugsað kynlíf svona, að það væru einhver samlegðar áhrif í því og að það skipti yfir höfuð máli. Ég hef alltaf hugsað þetta; ég fæ mitt, og þú færð þitt, og jújú, stundum gerir maður eitthvað bara fyrir hinn aðilann því hann fílar það, og stundum gerir maður það ekki. Mengið er samt alltaf mín upplifun, og svo er hans upplifun annað mengi.

Þegar ég hugsa þetta þá er þessi hugsanaháttur eitthvað sem maður ætti að sökkva sér út í. Hversu mörg stig gefur, eða tekur hver athöfn, og hversu mörgum stigum er hægt að safna í heildina. Stigahæsta kynlífið ætti þá að vera besta mögulega kynlífið sem tveir einstaklingar geta haft. Eins væri hægt að fækka athöfnum sem eru fremur stigalágar fyrir báða aðila, og taka algjörlega út þær athafnir sem eru í mínus. Þetta er markviss vinna í að gera kynlífið betra og læra að þekkja mótherjann enn betur.

Þessi bólfélagi er greinilega mjög hagfræðilega þenkjandi, þar sem hann heldur nákvæmlega utanum hver fær fullnægingu hvenær og hvar við stöndum. Staðan núna er 8 – 7, þar sem ég er með forystuna.


 

Ummæli

Vinsælar færslur