Nýársorgía

Mín nýársnótt var frekar róleg, en undir réttu kringumstæðunum þá væri ég alveg til í nýársorgíu.

Þessi nýársorgía var hinsvegar á Spáni, og löggan mætti á svæðið til að leysa upp teitið. Það er ekki það að orgíur séu bannaðar, heldur mega ekki fleiri en 10 koma saman vegna Covid. Þarna voru víst á bilinu 50-70 manns. 
Lögreglan komst á snoður um þetta þegar gestir bönkuðu óvart upp á hjá röngu fólki. Úps! Ég myndi helst ekki vilja lenda í því að banka upp á hjá blásaklausu fólki og spyrja hvort að orgían sé hjá þeim. Ég held reyndar að ég myndi því síður hringja á lögregluna til að tilkynna um slíkt teiti. 



Meira um þetta hér: https://9gag.com/gag/a0Z5grn

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Aldrei má maður ekki gera ekki neitt 🙃. Hfði auðvitað frekar fengið rétt heimilisfang frá þessu fólki og fengið að fljóta með.

Kveðja
ComputerSaysNo

Vinsælar færslur