Ég er gröð

Ég verð oft gröð á óheppilegum tímum, eins og núna þegar ég er í kapp við tímann við að ljúka verkefni. 
Á meðan ég grúfi mig ofaní bókina finn ég seiðing í píkunni sem heimtar athygli. Ég þarf að minna mig á að ég þarf að klára þetta verkefni. Samt heldur hún áfram að minna á sig. 

Akkúrat núna veit ég ekki hvað hún er að röfla! Það er nefnilega ekki langt síðan leikfélaginn kvaddi, kannski einn og hálfur tími. 
Í gærkvöldi fékk ég að taka á því, sem endaði með kröftugri fullnægingu í sófanum í stofunni. Við byrjuðum svo daginn á kúri uppi í rúmi, sem endaði með því að fingur hans köfuðu djúpt inn í mig, á meðan ég fitlaði við snípinn og laðaði fram fullnægingu sem skók mig alla. Hann má eiga það að fullnægingarnar sem ég fæ með honum eru í öflugra lagi. Píkan mín er því sannarlega búin að fá sitt! 
Hvort það eymi eftir af atlotum hans, sem kallar á meira, eða hvort hugurinn sé að forðast leiðinlega verkefnavinnu veit ég ekki. Ég veit bara það að ég er gröð núna, og það fer fiðringur um mig þegar ég leiði hugann að heimsókninni sem lauk fyrir skemmstu. 


Hinsvegar líður tíminn og verkefnið vinnur sig ekki sjálft.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Án þess að hafa fengið útnefninguna kynlífsráðgjafi kvenna, þá vill ég meina að þeim oftar sem kynlíf sé stundað þeim meiri vilji og löngun er í það.

Er það ekki bara ástæðan... líkaminn að kalla á sitt dobamín?

Kveðja
ComputerSaysNo

Vinsælar færslur