120

Munið þið eftir klemmuleiknum sem ég átti fyrir nokkrum vikum? Þar sem mér tókst með nokkrum orðum að koma 36 klemmum upp í 120 í þremur leikjum? Leikur númer þrjú var núna í fyrradag og markmiðið var 120 klemmur.

Leikfélaginn byrjaði á að binda mig kyrfilega svo ég yrði kyrr, til viðbótar fékk ég blindfold svo ég sá ekki hvað hann var að aðhafast. Síðan fann ég fyrir klemmunum.
Fyrstu klemmurnar fóru ofarlega á skapabarmana og svo raðaði hann þeim niður eftir skapabörmunum. Fokk, það var vont! Út frá því vann hann sig niður lærin, og fljótlega var ég búin að missa töluna klemmunum sem voru komnar á mig.
Eftir að hafa klemmt röð niður sitthvort lærið á mér fór hann að setja klemmur á brjóstin á mér, og því nær sem hann fór geirvörtunum þeim mun verra varð það. Úff, það var erfitt! 
Ég fann að ég var að komast að þolmörkum. Ekki alveg samt, en ef það væri mikið eftir, þá vissi ég að ég myndi ekki meika það. Eða svo hélt ég...
Ég spurði hann hvað það væru margar klemmur eftir. Hann spurði mig til baka hvort ég vissi hvað væru komnar margar á. Ég gat ómögulega svarað því, enda missti ég töluna eftir að þrjár klemmur voru komnar á lærin á mér, ég vildi bara vita hvað væru margar eftir.
Hann svaraði mér að það væru ekki svo margar eftir upp í 120, en hann hefði keypt 40 til viðbótar, sem hann átti eftir að setja á mig. FOKK!!!!! Ég dró andan nokkrum sinnum og herti upp hugann. Jújú, ég gæti alveg klárað þetta. Ég maldaði ekki einu sinni í móinn þegar hann dundaði sér við að setja allar klemmurnar sem til voru á mig.
Sumar klemmurnar voru ógeðslega vondar á meðan ég fann lítið fyrir öðrum. Hann sá samt fyrir því að ég finndi vel fyrir þeim öllum á meðan hann týndi þær af.
Einhver hafði nefnilega sagt honum að það væri hægt að snúa upp á þær áður en þær væru losaðar, eða toga í þær, svona til að áhrifin yrðu enn meiri. Stundum væri gott að kunna að þegja! Sem betur fer var ég ekki búin að segja honum að það væri hægt að færa þær til, þétta þær sem komnar væru á til að bæta klemmum við inn á milli, losa klemmur bara til að setja þær á aftur, hengja lóð neðan í þær, taka aðra hverja klemmu af, eða jafnvel skilja eina eftir og athuga hvort að viðkomandi finni fyrir henni.

Jæks! Vonandi les hann ekki bloggið mitt!!

Ummæli

Vinsælar færslur