Sundferð

Voru þeir ekki örugglega í svörtu töskunni heima? Þessari hugsun laust niður í hausinn á mér þar sem ég sat við stýrið. Gríslingarnir voru í aftursætinu og hlökkuðu mikið til sundferðarinnar. Voru þeir jafnvel í grænu töskunni í skottinu og sunddótið í þeirri svörtu?
Allt í einu var ég orðinn óviss, svo ég keyrði út í kannt, opnaði skottið og kíkti í töskuna.
Við mér blasti handfang af flogger en ekki sundföt.
Úps! Þeir voru þá í grænu töskunni og sunddótið í þeirri svörtu heima. Sem betur fer vorum við ekki komin langt svo það var lítið mál að snúa við og skipta út tösku. Enginn gerði athugasemd við það að sunddótið hafi gleymst heima. Í huganum sendi ég almættinu þakkir fyrir að þurfa ekki að standa hálfklædd í sundklefanum með þrjá floggera og engin sundföt. 


Það hefði verið frekar vandræðalegt!!

Ummæli

Vinsælar færslur