Píkur

Fetlife er fullt af píkum. Inni á fetlife er síða sem nefnist Kinky and Popular. Eins og gefur að skilja þá fer þangað inn efni sem fær mestu ástina (fetlife er ekki með like heldur love), enda er það vinsælasta efnið. Það, eins og allt annað í heiminum gengur í bylgjum. Brjóst koma þar yfirleitt við sögu, rassar stundum, harðir limir eru þarna inn á milli, allskonar stellingar, leikföng, bindingar, aðstæður og svo framvegis. Undanfarið hafa það verið píkur. 

Píkur og meiri píkur. Loðnar píkur. Naktar píkur. Píkur með lim í sér. Dökkar píkur. Tattúaðar píkur. Feitar píkur. Ljósar píkur. Píkur með leikföngum. Píkur í nærmynd. Píkur upp undir pilsum. Píkur í vinnunni. Píkur í baði. Allar mögulegar útgáfur af píkum hafa prítt veggi fetlife. 

Ég hef ekki verið mjög hrifin af píkum í gegnum tíðina. Ekki svona sjónrænt. Mín afstaða til annarra píka hefur verið sú að þær eru til, þær eru allskonar, og þær mega vera allskonar. Ég laðast ekki að píkum og tepran í mér hefur reynt að horfa framhjá þeim. En þegar fetlife er fullt af píkum þá kemst maður ekki hjá því, og smátt og smátt verður maður ónæmur fyrir píkum. Strákar, ótrúlegt en satt, þá gerist það ef maður sér bara nógu mikið af þeim. 

Afstaðan mín til minnar píku hefur kannski verið smá í takt við þetta. Jú, hún er dásamleg, veitir mér mikinn unað og er fær um ótrúlegustu hluti. Hún er mjúk og meira að segja svolítið sæt að mínu mati og ég er stolt af henni. Ég hef samt ekki lagt það í vana minn að horfa mikið á hana, hún er bara sæt upp að ákveðnu marki, eða réttara sagt, frá ákveðnu sjónarhorni. Mínu sjónarhorni, að ofan frá. Ég held að ég hafi aldrei haft þörf fyrir að sýna hana sérstaklega eða taka myndir af henni og pósta á alnetinu. 

Nema hvað, ég sat á klósettinu í dag og mér var litið niður á hana. Ytri barmarnir voru aðeins í sundur og það rétt glitti í snípinn á milli þeirra. Ég hugsaði með mér að þetta væri nú alveg falleg sjón, og það mætti jafnvel leyfa öðrum að njóta hennar. Ég tók símann, mundaði hann, stillti fókusinn eins og ég vildi hafa hann og smellti af. Síðan skoðaði ég myndina í góðan tíma. Hún er nú bara nokkuð myndarleg, píkan mín.
Ég ákvað að endurtaka þennan leik seinna, þegar hún væri ný rökuð og fersk, á betri stað og með þægilega lýsingu. Síðan eyddi ég myndinni og hélt út í daginn. 

Hver veit nema ég setji mynd af píkunni minni á alnetið? 

Ummæli

Vinsælar færslur