Fuck or pass

Á fetlife er leikur sem heitir Fuck or pass. Þar áttu að kíkja á þann sem síðast skrifaði athugasemd og ákveða hvort það sé einhver sem þú vildir sænga hjá eða ekki. 

Ég tek stundum þátt í þessum leik og oftar en ekki skrifa ég "pass" við viðkomandi aðila. Um daginn þegar ég var að kíkja á prófíl einhvers fetlife-ings fór ég að velta því fyrir mér hvað það væri sem réði því hvort ég skrifaði "fuck" eða "pass". Það eru nokkur atriði. 

1. Aldur, kyn og kynhneigð viðkomandi. Ég hef enga löngun til að sofa hjá kvenfólki. Að sama skapi langar mig ekki að sofa hjá ungum strákum eða mönnum sem eru miklu eldri en ég. Samkynhneigðir karlmenn henta líka enganveginn, af augljósum ástæðum.

2. Það hlutverk sem viðkomandi velur sér. Ég er hrifnari af dommum en subbum. Þannig að það eru minni líkur á því að ég skrifi við "fuck" við sub heldur en dom. 

3. Mynd. Já, það er betra að hafa mynd. Það er ekki nauðsynlegt að það sé mynd af viðkomandi, en einhver mynd. Ég laðast ekki að spurningamerkjum. 

4. Hópar. Ég legg mat á áhugasvið viðkomandi eftir því í hvaða hópum hann er. Ef hann er í engum hóp efast ég um áhuga viðkomandi á BDSM, að sama skapi ef hann er bara í kynlífs-hópum eða hópum sem samræmast ekki mínu áhugasviði þá fær viðkomandi "pass" frá mér. 

5. Fetish. Ef við gefum okkur að viðkomandi sé á réttu róli hvað varðar aldur, kyn, kynhneigð, mynd og hópa, þá skoða ég fetish-listann hjá honum. Eru fetish sem ég fíla á listanum? Get ég séð sjálfa mig fyrir mér í leikjum sem innihalda þessi atriði? 

6. Virkni. Á fetlife getur maður séð hvað það er sem fólk er að líka við. Ef það eru bara píkumyndir og kynferðislegar myndir, en engin skrif eða kink-legar myndir þá myndi ég hugsa mig um tvisvar. 

7. Vinir og fylgjendur. Ef að viðkomandi á enga vini, og er bara fylgjandi fólks sem er.... tja.... á kynferðislegu nótunum sem vill athygli og jafnvel peninga. Þá er það líka eitthvað sem ég staldra við. 

Síðan skal ég játa það að dagsformið hefur mikið að segja. Heitur gaur á hentugum aldri fær "fuck" frá mér ef að ég er á þörfinni. Sami gaur fengi "pass" einhvern annan dag, þegar hugur minn snýr meira að kinkinu. Enn aðra daga myndi hver sem er fá "pass" frá mér af því að ég er þannig stemmd. 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Já.. það er ekki auðvelt að tikka í öll boxin.

Ég get þó tikkað við að vera kk og ekki samkynhneigður.... en annars verð ég bara að vona að dagsformið bjargi rest.

Kveðja
ComputerSaysNo

Vinsælar færslur