örfantasía

Ég finn hendurnar á þér leika létt yfir rassinn á mér, fiðringur fer um mig þar sem ég er nakin þversum yfir fæturna þína í sófanum. Skellurinn kemur, harður, ákveðinn og stingandi. Ég gref andlitið á mér ofan í púðann og emja undan sársaukanum. Ég finn roðann hlaupa fram í húðina undan hönd þinni. Aftur finn ég létta snertingu og blíðar strokur, en ég veit að það er bara tímaspursmál hvenær næsti skellur kemur. 

Ummæli

Vinsælar færslur