sexý

 Ég fór í zumba um daginn, og ji minn eini! Zumba-kennarinn er rosalega sexý. 

Hún lætur ekki mikið yfir sér þegar maður sér hana í fyrsta skipti. En þegar hún byrjar að dansa þá fer það ekki framhjá neinum. Hún er ekki þessi týpíska granna gella, með ljóst hár, stór brjóst, sem gengur í þröngum fötum sem sýna allar línurnar. Nei, hún er með mjúkar línur, breiðar mjaðmir, rass og læri, meira að segja smá bumbu.

Það sem gerir hana svona sexý er fyrst og síðast sjálfsöryggið sem hún býr yfir, það hvernig hún nýtur þess að hreyfa líkama sinn og leyfir sér að taka pláss. Hún leyfir kynþokkanum að skína í gegn með því hvernig hún ber sig. 

Og það er sexý!! 

Ummæli

Vinsælar færslur