Löngun

Lífið er gott. Ég kvarta ekki, enda hef ég ekki undan neinu að kvarta. 

Það kemur samt fyrir endrum og sinnum, eins og núna að ég dett í einhvern gír. Ég er svolítið á þörfinni núna og mig langar í athygli.
Mig langar að einhver líti mig girndaraugum, sýni mér með orðum og gjörðum að ég sé eftirsóknarverð, að ég sé sexý. Mig langar að hann gangi svolítið á eftir mér. Mig langar í daðrið, í spennuna, tvíræðu skilaboðin, eftirvæntinguna, jafnvel augnagotur. Mig langar í þránna og svo ef allt gengur upp.... snertinguna, hamslausan lostann og að drekkja mér í einhverjum öðrum. 

Ummæli

Vinsælar færslur