Örfantasía

Ég ligg á maganum með koddann í fanginu. Ég er nakin. Það er hálf dregið fyrir gluggann og hlýtt inni í herberginu. Ég hef ekki þörf fyrir sæng til að hlýja mér. Ég finn hvernig snertingin er ofurlétt við herðarblaðið á mér, ég veit ekki nákvæmlega hvað þú ert að gera, eða hvaða áhöld þú notar, en þessa stundina er ég strigi þinn. Þú hefur fullt leyfi til að myndskreyta mig eins og þér hentar, og þú ætlar að þér að nota þetta tækifæri. Á meðan nýt ég þess hvernig þú vandar þig við verkið. Ég nýt að hafa alla þína athygli, en samt ekki, þar sem hugur þinn og hönd er við myndskreytingarnar á líkama mínum en ekki beint á mér sjálfri.  

Ummæli

Vinsælar færslur