Tinder-deitið

Þegar ég skrifa þennan póst hvarflar það að mér að það eru komin tvö ár síðan ég hitti hann fyrst. Hann er ennþá eini maðurinn sem ég hef hitt af Tinder. Einn af örfáum sem ég hef yfir höfuð spjallað við á Tinder. 

Þegar ég opna appið og fer að skoða notendur þess þá lendi ég yfirleitt í sama þankaganginum.
Þó svo að mennirnir þarna inni geti verið guðdómlega fallegir og sérlega áhugaverðir; með eina mynd af sér úr brúðkaupi frænku sinnar eða á ráðstefnu, aðra mynd þar sem þeir halda á laxi, þriðju myndina þar sem þeir eru í fallhlífarstökki, eða í kafarabúningnum undir vatni eða, í ísklifri, og svo helst ein mynd þar sem þeir knúsa hvolp/barn. Þá vantar yfirleitt texta með myndunum. Stundum stendur bara "1,86" sem mér skilst að stafi af grunnhyggni kynsystra minna sem gera hæðarkröfu á karlmenn. Sjaldnast kemur fram að viðkomandi sé kinky, og ef það kemur fram þá er það yfirleitt einhver sem ég þekki fyrir úr senunni. Hins vegar er það einmitt það sem ég vil helst vita. Ég nenni helst ekki að eyða löngum tíma í spjall við einhvern sem hefur svo engan áhuga á BDSM.

Sennilega er ég orðin svona gömul, en ég fæ mjög hratt leið á vanillum. Ég er líka komin langt út fyrir efnið. Ég ætlaði að segja ykkur frá Tinder-deitinu mínu.
Hann er vanillumegin í lífinu, og sagðist vera hræddur við að stíga inn í þennan heim sem ég lifi og hrærist í. Hann sagðist óttast það að hann fíli það og þá er engin leið til baka. Fyrir utan hvað það er mikil vinna að setja sig inn í svona, og hann er letiblóð. Samt hef ég hitt hann af og til í þessi tvö ár. Enda líður mér eins og prinsessu í kringum hann. Hann snertir mig þegar hann getur, kyssir mig við hvert tækifæri, færir mér allt sem ég bið um og býður mér margt fleira, dekrar mig með athygli sinni og fær ekki nóg af því að gæla við mig. Viðbrögðin mín við atlotum hans æsa hann, og það er ekkert sem æsir mig meira en að ég æsi hann. 

Hann gerir engar kröfur á mig, aðrar en að ég njóti mín. Hann hrósar mér og kann að meta það þegar ég hef gert mig fína, en er alveg jafn glaður að sjá mig þegar ég hef ekkert haft mig til. Honum er til dæmis sama þó ég sé órökuð og virðist njóta þess jafn mikið láta tunguna leika við mig þegar ég er loðin og þegar ég er rökuð. Því fylgir ákveðið frelsi, allur rakstur er þá algjörlega á mínum forsendum, og ég þarf ekki að stressa mig á því hvort ég sé ný rökuð eða ekki. 

Ef satt best skal segja vinnur það með honum. Þessa dagana er ég mikið að vinna og hleyp á milli staða. Ég hef ekki gefið mér tíma í sjálfsdekur í lengri tíma og undir einhverjum kringumstæðum hefði það verið ástæða þess að ég kýs að hitta ekki einhvern. Vitandi að honum sé sama, og vitandi að hjá honum fæ ég athygli, snertingu, aðdáun og dekur, þá er það stund á milli stríða að stoppa hjá honum þegar færi gefst. 

Mér finnst eiginlega að allir ættu að eiga eitt svona tinder-deit. 

Ummæli

Vinsælar færslur