Skot

Ekki alls fyrir löngu kom maður í smá verkefni í vinnunni minni. Ég hafði séð hann nokkrum sinnum í fjölmiðlum og fundist hann mjög myndarlegur. Með sítt hár og alskegg, góðlegan svip, djúsí varir og fáránlega fallegt bros. -Þegar ég svo fékk álit vinkonu minnar á honum, þá komst ég að því að ég var ein um það að finnast hann guðdómlega myndarlegur. 

Við vorum nokkur saman að vinna að þessu. Strax á fyrsta fundi fannst mér allt að því óþægilegt að vera nálægt honum. Ég átti svolítið erfitt með að horfa á hann án þess að fara að dáðst að honum og þurfti að hafa mig alla við til að vera fagmannleg, en ekki hreinlega fara að slefa. Í ofanálag þá hafði hann góða nærveru, fallega rödd, og stórar og hlýjar hendur. (Ég hef tekið eftir því að ef ég laðast að einhverjum þá fer ég að skoða hendurnar á honum.) Oftar en einu sinni stóð ég mig að því að því að láta mig dreyma um að liggja í fanginu á honum, með þessar stóru og hlýju hendur utanum mig. 

Sem betur fer var ég ekki að vinna náið með honum, það hefði verið mjög truflandi. Þegar leið á þá fann ég að þetta skot mitt var ekkert að minnka. Hann hafði hugmyndir í takt við mínar, var mjög alúðlegur faðir þegar eitt barnið hans þurfti að koma með honum, og bjó yfir þessu hægláta og hógværa sjálfsöryggi.

Þegar komið var undir lok þessa verkefnis þá stóð ég mig að því að beinlínis forðast hann. Ef ég þurfti ekki að vera í návist hans, þá hélt ég mig annarsstðar. Ég drollaði annarsstaðar í byggingunni við ónauðsynlegan frágang á einhverju, ég skrapp á klósettið, fann mér verkefni annarsstaðar o.s.frv. Ég var alveg viss um það að a) þetta skot mitt myndi ágerast og það væri engum til gags, hann er nú harðgiftur maðurinn! Og b) það gætu allir lesið það úr svipbrigðum og hegðun minni að ég væri vandræðalega mikið skotin í honum. 

Þessu verkefni er lokið núna, en ég veit að hann verður eitthvað viðloðinn vinnustaðinn minn áfram. Ég bæði hlakka til að rekast á hann aftur, og ekki. 

Ég skal samt viðurkenna það að svona lagað er krydd í lífið, ég hef gaman af þessu. Kannski er það sjálfspyntingarhvötin sem ekki fær útrás þessa dagana? 

 

Ummæli

Vinsælar færslur