Af smokkum og getnaðarvörnum

Ég hef sofið hjá fleiri en einum og fleiri en tveimur karlmönnum um ævina. Allir hafa þeir haft eitthvað til brunns að bera. Sumir góðir í kinkinu, aðrir með guðdómlegar hendur, enn aðrir með góðan lim, og svona má lengi telja. 

Nýjasti elskhuginn, sem ég hef ekki ennþá þorað að ræða kink-partinn af mér við, hefur einn þann sverasta lim sem ég hef kynnst! Og ég hef kynnst þeim nokkrum, sumum hverjum mjög sverum.

Hann sagði mér líka að smokkanotkun hafi verið til trafala fyrir hann. Þeir væntanlega passa illa og hann sagði að þegar smokkurinn væri kominn á ætti hann það til að missa reysn. Ég veit að það gerist alveg, ég hef áður verið með karlmönnum sem þurftu að eiga við þetta vandamál.

Núna er ég ekki á neinni getnaðarvörn, svo smokkalausar samfarir eru eiginlega ekki í boði. Ég er allavega ekki til í að taka sénsinn. Þannig að ég lagði höfðuðið í bleyti og fór að velta fyrir mér hvað hægt væri að gera.

Við gætum auðvitað haldið áfram á þeirri braut sem við erum á, þar sem munngælur og fingrafimi eru í forgrunni. Jújú, við fullnægjum hvort öðru alveg svoleiðis en mig langar samt í almennilegar ríðingar. 

Ég gæti farið á einhverskonar getnaðarvörn. Kannski eitthvað sem hefur jafnframt í för með sér að ég fari ekki á blæðingar. Það væri sannarlega mikill kostur. Kannski ég fái mér stafinn aftur? Eða prófi sprautuna? Lykkjan er alltaf möguleiki. Pillan er örugglega aðgengilegust af þessu öllu. Ég er samt ekki alveg til í að rugla í hormónabúskapnum mínum akkúrat núna. 

Ég gæti látið verða af því og farið í ófrjósemisaðgerð. Það er varanleg getnaðarvörn sem hefur engin áhrif á hormónabúskapinn. Þegar ég velti þessu svona fyrir mér fer ég að tvístíga svolítið. Það er einum of endanlegt fyrir mig. Kannski skipti ég um skoðun og langar að bæta við einu barni. Það er mjög ólíklegt en ég er ekki til í að útiloka það alveg alveg strax. 

Hvað er þá eftir? 

Stærri smokkar. Þeir eru ekki alveg á hverju strái og ekkert víst að það hafi áhrif að smokkurinn sé stærri. Kannski kamagra eða viagra með þeim gæti hjálpað til? Það er samtal sem ég þarf þá að eiga við elskhugann, hvort hann sé til í svoleiðis prufur. 

Herraklipping. Ekki mitt að ákveða og finndist bara fáránlegt að nefna það ef satt best skal segja.

Náttúrulegar aðferðir. Ég þarf þá að kynna mér þær almennilega. Eitthvað með að mæla líkamshitann á hverjum morgni, fylgjast með slímmyndun, skrifa nákvæmlega niður tíðarhringinn og eitthvað meira í þá veru. Klárlega ein ódýrasta leiðin, en ekki jafn örugg og margar aðrar, og mikil vinna.
Nenni ég svo mikilli vinnu fyrir kauða sem ég hef tök á að hitta kannski tvö kvöld aðra hverja viku? Ég er ekki viss um það. Fyrir utan að þessi aðferð hentar best þeim konum sem eru á reglulegum blæðingum og mínar hafa ekkert verið að ganga eftir klukkunni í gegnum tíðina. 

Hettan, er hún ennþá til? 

Svo datt ég niður á kven-smokkinn. Það er einhverskonar hólkur sem er settur upp í leggöngin, og liggur vel út fyrir þau líka, og limurinn getur gengið inn og út úr honum. Ég leitaði að honum hér á landi en fann ekkert. Þá fór ég að gúgla og fann söluaðila á ebay. Kannski er það greddan sem er að fara með mig, en ég á allavega von á pakka í næstu viku. 

Ég vona það mjög heitt að þeir virki fyrir hann, því mig dauðlangar að finna fyrir honum inni í mér. Ekki bara uppi í mér. 

Ummæli

Vinsælar færslur