Fyrsta skipti með hettuna
Afhverju varð hettan ekki vinsæl? Var það af því að hún er ekki jafn örugg og aðrar getnaðarvarnir? Eða af því að hún er ekki kynsjúkdómavörn?
Mig langar svolítið að vita afhverju. Mín hetta kom nefnilega um daginn. Ferlega sæt og fín og ég vildi auðvitað nota hana við fyrsta tækifæri sem gafst. Það kom mér á óvart hvað hún er einföld í notkun. Jú, maður þarf að setja sæðisdrepandi krem í hana, en svo rennir maður henni bara á sinn stað eins og passar að hún sitji rétt. Strax eftir fyrsta skiptið þá var þetta ekkert mál. Ég tók nefnilega smá æfingaumferð.
Annar kostur við hettuna, maður getur sett hana á sinn stað fyrir stefnumótið og er þá til í tuskið um leið og færi gefst. Það þarf ekki að pása til að setja hana á sinn stað eins og með smokkinn.
Þegar von var á draumaprinsinum þá setti ég hettuna á sinn stað. Eins og verða vill hitnaði hratt í kolunum hjá okkur og fljótlega vorum við orðin alsnakin uppi í rúmi. Mér fannst unaðslegt að finna hann upp við mig, að finna fyrir höndum hans snerta mig, að finna hlýjuna sem stafaði af honum, að finna varir hans á mínum og lyktina af honum. Eftir talsverða kossa og kelerí þá kom hann sér fyrir og ég fann hvernig sver limur hans rann inn í mig. Píkan mín tók fagnandi á móti honum og ég engdist um undir honum. Nautnin var algjör og gagntók mig. Að finna fyrir honum með þessum hætti! Engin plast-tilfinning sem fylgir oft smokkanotkun heldur sannarleg snerting húð-við-húð. Það var unaðslegt. Ég fann lítið sem ekkert fyrir hettunni inni í mér, en þeim mun meira fann ég fyrir honum.
Eftir atlotin og heillangt koddahjal sofnuðum við í faðmlögum. Hettan á nefnilega að vera á sínum stað í 6 klst eftir samfarir. Morguninn eftir tók ég hana svo, skolaði og setti hana í boxið sitt.
Vitiði.... ég væri löngu löngu búin að fá mér hettu ef ég vissi hve þægileg getnaðarvörn hún er! Löngu!!
Ummæli