Nóttin

Framhald af öðru stefnumóti 

Eftir notalega kvöldgöngu og spjall heima í stofu þá sátum við í sófanum í innilegum faðmlögum og kossaflensi. Ég vissi strax að ég vildi meira og spurði hann hvort við ættum ekki að færa okkur inn í rúm. 

Þegar við komum inn í svefnherbergi þá kyssti hann mig áfram eins og hungraður maður. Hann klæddi mig síðan rólega úr að ofan og losaði meira að segja brjóstahaldarann alveg sjálfur. Á móti tók ég til við að losa skyrtuhnappana og klæða hann úr skyrtunni. Bringa hans var stór og passlega loðin. Það kom mér á óvart hvað hárin voru mjúk viðkomu. Í raun var hann allur mjúkur viðkomu og mér fannst ótrúlega gott að snerta hann. Jafnvel betra fannst mér að finna hvernig hendur hans fóru um mig, stórar og hlýjar. 

Tilfinningin í atlotum hans var eins og hann fengi ekki nóg af mér. Það var heldur ekkert stress, engin spéhræðsla, og enginn asi. Vissulega var mikill losti og ákafi en allt fékk að hafa sinn tíma. 

Eftir heilmikið káf og marga kossa í rúminu færði hann sig niður líkama minn. Hann kom sér fyrir milli fóta minna og fljótlega fann ég tungu hans leika um píkuna á mér. Hann var lunkinn við þetta og tók sér mjög góðan tíma. Eins oft og ég hafði gælt við þá hugmynd hvernig væri að hafa hann þarna, þá komst ímyndunaraflið ekki í hálfkvist við raunveruleikann.

Unaðurinn fór um mig í bylgjum og nautnin heltók mig. Á meðan hann sleikti mig horfði hann á mig engjast um undan atlotum sínum. Það var eins og hann væri að gæða sér á mér á tvennan hátt, með tungunni og augunum. Á sama tíma og ég iðaði undan tungufimi hans var einhver stóísk ró yfir honum. Þetta var falleg og innileg stund, þangað til hann reisti sig við aftur, kom yfir mig og kyssti mig ákaft. Ég fann bragðið af sjálfri mér af honum og verð að viðurkenna að ég hafði saknað þess.

Eftir mikið kossaflens stoppaði hann í smástund. Augu hans hvörfluðu yfir andlitið á mér og það kom á hann blíður svipur áður en hann sagði einfaldlega "þú ert falleg". Á þeirri stundu bráðnaði ég og dró hann til mín í innilegan koss. 

Nóttin einkenndist af þessu; áköfum kossum, snertingum, munnmökum, unaði, faðmlögum og dásamlegu kúri. Það var mjög lítið sofið. Þar sem við vorum ekki með getnaðarvörn við hendina varð ekkert um ríðingar, en það var ekki lítið sem mig langaði í hann! Að finna hann ofaná mér og inni í mér. 

Núna nokkrum dögum seinna fæ ég ennþá sæluhroll við tilhugsunina um þessa nótt. Hún var einstök á svo margan máta en á sama tíma á ekkert sérlega krassandi. Það sem einkenndi þetta allt saman var þessi dásamlega tilfinning; að vera eftirsóknarverð og elskuð. 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Haltu í þennan. Góða skemmtun :-)

Vinsælar færslur