Skegg og munnmök

Mér finnst karlmenn með vel hirt og fallegt skegg oft mjög aðlaðandi.
Það er eitthvað við þá. Kannski er það að maður tekur ómeðvitað inn að þeir eru stútfullir af testesteroni og hæfir í að fjölga mannkyninu. Kannski er það tískan, því fleiri menn en færri skarta skeggi þessa dagana. Kannski er það bara minn persónulegi smekkur. Hvað sem það er, þá finnst mér fallegt skegg sexý. 

Þegar við kynntust skartaði Draumaprinsinn (með stóru D-i) talsverðu skeggi. Það var ótrúlega notalegt að róta í því þegar við kúrðum uppi í rúmi og það æsti mig svolítið að finna það strjúkast við húðina þegar hann kyssti mig aftan á hálsinn. Alveg svo að það fór fiðringur um mig. 

Skeggið var að gera góða hluti fyrir mig. 

Hinsvegar var það ekki alveg jafn frábært fyrir hann. 

Hann er maður sem nýtur þess að sleikja góða píku og þar er mín píka engin undantekning.
Ég nýt þess líka þegar píkan mín er sleikt vel og vandlega. Mér finnst það enn betra þegar fingri er rennt inn í hana og ég er puttuð á sama tíma og ég er sleikt. Í þau fáu skipti sem ég hef fengið það án þess að vera sjálf að fitla við mig hefur það yfirleitt verið þegar ég hef verið sleikt og puttuð á sama tíma. Það getur verið svo unaðslega gott! 

Eðlilega þá hef ég stundum beðið Draumaprinsinn um þetta. Að hann putti mig á sama tíma og hann sleiki mig. Hann hefur alltaf látið það eftir mér og ég hef alltaf notið þess jafn mikið. 

Einhverju sinni þegar við hittumst var hann búinn að snyrta skeggið á sér og taka svolítið af því. Hann játaði þá glottandi fyrir mér að hann hafi verið í basli við að sleikja mig og putta á sama tíma, þar sem skeggið á honum flæktist fyrir og hann hafi hreinlega verið farinn að ýta því inn í píkuna á mér í atlotunum. 

Ég gat ekki að því gert, en ég hló. Ég skellihló.  Ég kann líka svo innilega að meta mann sem tekur kynlífinu ekki of alvarlega og hefur húmor fyrir því. 

Ætli það verði ekki passað upp á að skeggið verði ekki of sítt hér eftir? 


Ummæli

Vinsælar færslur