Af endalausu kynlífi

Undanfarna mánuði hef ég stundað meira kynlíf en nokkru sinni! Kannski er ég bara orðin gömul og kölkuð en ég man allavega ekki til þess. 

Við Draumaprinsinn höfum nýtt nær allar nætur sem gefast til að vera saman, og því fylgir alltaf eitthvað kynferðislegt líka. Stundum áður en við sofnum, stundum í morgunsárið eftir að vekjaraklukkan hefur hringt ókristilega snemma að mínu mati, stundum er það hvort tveggja. 

Ég veit fátt betra en að byrja daginn á góðu kynlífi og finnst það dásamlegt að Draumaprinsinn virðist vera á sama máli. Ég elska að finna líkama okkar liggja fléttaða saman þegar svefnhöfginn hverfur af mér, þrýsta mér upp við hann og finna hendur hans strjúka mér blítt, leita uppi varir hans með mínum og bjóða honum góðan daginn með kossi. Kossi sem í fyrstu er blíður en verður ástríðufullur og kallar eftir meiru.... Margir morgnar hjá mér eru akkúrat svona. 

Ég hef sjaldan upplifað mig jafn eftirsóknarverða sem kynveru og einmitt núna. Draumaprinsinn hefur líka einstakt lag á að kveikja í mér. Smá koss, örlítil snerting, jafnvel bara ákveðið augnatillit og ég er komin á flug. 

Bara við að skrifa þetta, rifja upp þessar stundir og hugsa um snertingu hans og atlot kveikir í mér... 

Ummæli

Vinsælar færslur