Traust

Eins og glöggir lesendur mínir vita þá er Draumaprinsinn mættur á svæðið. Hann kom ekki ríðandi á hvítum hesti, heldur kom hann siglandi á öldum internetsins og stefnumótaapparata. Eiginlega var hann búinn að vera beint fyrir framan nefið á mér í nokkurn tíma. 

Ég átti strax mjög auðvelt með að spjalla við hann og við ræddum saman um heima og geima. Fljótlega eftir að við fórum að hittast var farið í ærlega vorhreingerningu og hreinsað út úr öllum skápum og skúmaskotum. Erfiðar lífreynslur voru dregnar fram sem og allt annað sem gæti skyggt á þetta fallega samband sem var að fæðast. Stundum var það mjög erfitt en eftir á var það mjög gott. Ég fann að mér leið vel með honum, og ég vildi leggja góðan og traustan grunn að framhaldinu. 

Þegar kom að kinkinu sagði hann að væri ekki alveg þar. Hinsvegar þá stoppaði það hann ekki í að prófa örlítið smáræði í grófari kanntinum. Rassskellur hér og klipið í brjóst þar. Ég hvatti hann áfram og kunni mikið að meta að hann væri til í að stíga út fyrir þægindarammann og prófa. 

Eitt kvöldið lágum við uppi í rúmi, eins og svo oft, hvort á móti öðru. Fæturnir voru fléttaðir samar og hendurnar léku um nakta húð hvers annars. Fingur hans fundu geirvörtu og tóku varlega utanum hana. Ég horfði egnandi á hann og sagði einfaldlega "fastar". Hann herti takið svolítið áður en hann sleppti geirvörtunni alveg og sagðist ekki vilja meiða mig. "Þú meiðir mig ekki" sagði ég, en eftir andartaks umhugsun leiðrétti ég þetta. "Það er ekki rétt, því þú meiðir mig. En ég fíla það!!" 

Það er einmitt þannig sem ég sé BDSM, í sinni tærustu mynd. Annar aðilinn gerir eitthvað við hinn, og hinn aðilinn fílar það. Þeir báðir ættu að sjálfsögðu að fíla það sem á sér stað.
Það er nefnilega ekki spurning um hvað er gert, eða hvernig (innan þeirra marka að allt sé með samþykki og valdi ekki varanlegum skaða), heldur einfaldlega hvort það sé fílað. Þannig getur BDSM regnhlífin verið óendanlega stór. 

Bundið fyrir augun; fíla'ða. Bundin á höndum og fótum; fíla'ða. Með ballgag í munninum; fíla'ða. Með 5-120 klemmur hér og þar um líkamann; fíla'ða. Heitt kertavax beint á bakið; fíla'ða. Hýðing með vænum flogger; fíla'ða. Að fá að krjúpa á gólfinu; fíla'ða. Strokið blítt og létt; fíla'ða. Finna hendur strjúka yfir kollinn á mér og heyra blíðleg orð; fíla'ða. Fá að vera lítil, sleppa tökunum af skyldum þess fullorðna og sjálfstæða; fíla'ða. Að gefa eftir, sleppa takinu af sjálfinu og lífinu og fá bara að vera, vitandi að einhver annar sér um mig; fíla'ða. 

Ég horfði á Draumaprinsinn og áttaði mig á einu. Ég þurfti að sýna honum að hann gæti treyst mér til að taka á móti, og það sem meira er, ég þurfti að sýna honum að ég myndi ekki leyfa honum að fara yfir mörkin mín. "Treystu mér" sagði ég. "Treystu mér til að segja stopp áður en þú gengur of langt". Hann tók geirvörtuna aftur á milli fingra sér og kreisti. Fastar í þetta skipti, og herti svo takið alveg þangað til ég var farin að kveinka mér. Alveg þangað til ég sagði stopp.
Við gerðum þetta nokkrum sinnum. Í hvert skipti varð hann ákveðnari og leyfði sér meira. Við hættum ekki fyrr en ég bað um það. Þá voru geirvörtunar á mér líka orðnar dásamlega aumar og ég fann fyrir þessum atlotum okkar lengi á eftir.  

Ég hef aldrei unnið með BDSM og traust á þennan máta. Þetta var alveg ný lífreynsla fyrir mig. 
Fyrir okkur bæði. 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Æðislegt að heyra! Gangi ykkur vel :-)

Vinsælar færslur