Rosa Mega S...S...S...D...Leik Partý
RMSSSDLP eru (næstum) mánaðarleg BDSM leikpartý. Þar sem BDSM-fólk kemur saman í öllu sínu veldi.
Mér finnst þau frábær. Þarna fær maður tækifæri til að skarta sínum flottustu kink-fötum og njóta sín meðal annarra perralinga.
Ég fór í svona partý um daginn. Ég hafði ekki farið mjög lengi, og fannst frábært að sjá öll nýju andlitin. Alla sem klæddu sig upp, alla sem komu til að njóta, alla sem stigu út fyrir þægindarammann og gerðu sér jafnframt glaðan dag. Þetta var æði! Fólk á öllum aldri sem deilir áhuga BDSM.
Á nokkrum stöðum í partýinu var hægt að binda fólk og taka leik. Margir nýttu sér það og sjá mátti svipuhögg og flengingar út í gegnum kvöldið. Á meðan sumir voru að leika sátu aðrir og horfðu á.
Ég fylgdist með einum slíkum leik. Dáðist að floggertækni drottnarans og einlægu nándinni sem greinilega ríkti á milli þeirra.
Ein vinkona mín settist á gólfið við hliðina á mér. Hún hallaði sér í áttina að mér og ég klappaði henni blíðlega á kollinn. Hún virtist njóta þess og ég leyfði henni að leggja höfðið á sér upp við lærið á mér. Ég strauk rólega yfir kollinn á henni og fitlaði svolítið við hárið á henni á meðan við fylgdumst með leiknum. Ég fann hvernig slakknaði á henni og hvernig hún naut atlota minna. Á meðan leikurinn var í gangi sátum við svona, hún á gólfinu við hliðina á mér með höfuðið hallað upp að lærinu á mér. Ég á stól og strauk henni blíðlega. Þetta var indæl stund og ekki eitthvað sem maður býst endilega við í harðkjarna BDSM partýi. Ég held samt að hún hafi þarna fengið smá útrás fyrir sínar þarfir, og við nutum okkar báðar.
Þetta er einmitt það sem mér finnst svo dásamlegt við BDSM-heiminn. Það má allt! BDSM þarf ekki að vera eitthvað svakalegt dæmi, með leðri, svipum, keðjum og gaddavír. Það getur verið blíðlegar strokur og innileg orð ef út í það er farið.
Ummæli