Blautur draumur

Um daginn vaknaði ég með þennan draum í huganum. 

Einhverra hluta vegna mætti ég á veitingastað frekar út fyrir bæinn þar sem fjölskylda vinkonu minnar var saman komin. Þegar frá leið kvaddi fólkið og hélt sína leið. Ég var eftir ásamt örfáum, en aðallega starfsfólkinu. Við förum að tygja okkur af stað, en þá finn ég að ég þarf að stoppa á klósettinu. Ég spyr hvar klósettið er, og er þá leidd í gegnum staðinn, inn í einhverskonar starfsmannarými með starfsmannaskápum og þar fyrir innan eru tvö salerni.
Á undan mér er kona að bíða eftir að komast klósettið sjálf. Þar sem við stöndum þarna og bíðum fer starfsfólk að detta inn í rýmið. Það fækkar fötum, eins og það sé að fara að skipta um föt eftir langa vakt.

Fljótlega tek ég eftir því að fólk er þarna farið að stunda hörku kynlíf. Allavega tvö gagnhneigð pör eru í hörku samförum og eitt samkynhneigt par gælir hvort við annað. Andrúmsloftið breytist og unaðshljóðin þeirra óma um allt. Ég átti í vandræðum með mig þarna þar sem ég stóð bara og beið. Átti maður að horfa, eða ekki horfa? Óneitanlega hafði þetta mikil áhrif á mig í draumnum sjálfum og ég var orðin spólgröð og rennandi blaut, en á sama tíma frekar vandræðaleg.  

Draumurinn náði ekki lengra og þegar ég vaknaði var sama stemming, ég var sjóðandi gröð, rennandi blaut og með fiðring sunnan heiða sem kallaði á athygli. Því miður gat ég ekki gert neitt í því þá og þegar, og þessi gredda elti mig allan liðlangan daginn! Það var ekki fyrr en daginn eftir að ég fékk stund með sjálfri mér, og ó, það var svo gott! 

Ummæli

Vinsælar færslur