Potturinn - Saga
Þessi saga er líka sannsöguleg frá mínum yngri árum. Það var greinilega eitt og annað brallað þá.
____
Potturinn
Bíllinn rann hratt eftir veginum í myrkrinu.
Innanborðs voru tvær manneskjur. Karlmaður og kvenmaður, maður og kona, strákur og stelpa.Þau spjölluðu saman um daginn og veginn. Bíllinn hægði á sér og beygði útaf veginum yfir á malarveg. Eftir smá spotta eftir malarveginum beygði hann inn á vegaslóða og keyrði hann þar til komið var að litlu hrörlegu húsi.
Þau stíga út úr bílnum og feta sig inn í húsið.
Feimin klæða þau sig úr og stíga út í lítinn pott sem er við húsið.
Stjörnubjartur himininn kastar daufri birtu á umhverfið og þau sjálf. Aðeins er hægt að greina útlínur og grófa andlitsdrætti. Þau stara saman út í himingeiminn og dást að stjörnunum. Vatnið umlykur þau og í þögninni heyrist ekkert nema rennandi lækur skammt frá.
Þau njóta þess að finna vatnið leika við nakið hörund sitt í návist hvors annars.
Fótur snertir fót óvart og hönd rekst við læri. Röð tilviljanakenndra atvika veldur því að brátt sitja þau í örmum hvors annars.
Þau sitja þétt saman og hundsa þá augljósu staðreynd að bæði þrá hvort annað. Líkamar þeirra öskra af þrá svo hver snerting verður jafnt fróun og ákall á meira.
Hann tekur loks af skarið og stríkur höndinni upp með hálsi hennar og kyssir hana blíðlega. Hún svarar kossi hans mjúklega en full af þrá. Hann þrýstir henni upp að veggnum svo hún finnur harðan manndóm hans við sköp sín.
Hann heldur honum þar þangað til að hún iðar af löngun við að fá hann inn í sig, þá rennir hann sér inn í hana, hægt en ákveðið og fyllir hana alveg. Hún tekur andköf við að finna hann svona djúpt inni í sér.
Hann stoppar inni í henni og horfir á hana. Losti og þrá skín í andlitsdráttum hennar. Hann lítur fram og kyssir hana undurblítt og skakar sér til og frá. Hún stynur, andar ótt og títt og dregur hann til sín í ástríðufullum kossi.
Þau finna bæði hvernig lostinn tekur völdin úr höndum þeirra og losar um allar hömlur. Hann ræður ekki við sig og hamast á henni. Stunurnar og vatnsbuslið rjúfa friðsæla þögnina.
Stjörnurnar horfa þöglar á leik elskendanna.
Hann hættir að hamast á henni og dregur sig út úr henni. Hún gefur frá sér óánægjuhljóð en hann sest upp á bakkann. Þar sér hún sér leik á borði og fer að gæða sér á hörðum limnum hans. Hann stynur lágt og stríkur yfir hárið á henni.
Hún sleikir liminn græðgislega og tekur hann allan upp í sig. Hann þrýstir henni enn neðar og hún nýtur þess að finna hann alla leið niður í kok. Hann losar takið og gefur henni frjálsar hendur. Hún stríkur og sleikir liminn og hann finnur að hann á ekki langt eftir.
Hann nýtur þess að finna handbragð hennar á sér og varar hana við rétt áður en bunan spítist út úr honum. Hún drekkur hann í sig og sleikir hann hreinann.
Hann rennir sér kaldur ofaní pottinn aftur og hún vefur hann örmum og gefur honum hlýju af sínum líkama. Hann tekur utanum hana og þau kyssast.
Hann strýkur yfir brjóstin á henni og fingur hans leita milli læra hennar. Hann leitar uppi snípinn og nuddar hann rólega.
Æsingurinn í henni er mikill en hann heldur rólega taktinum. Þau spjalla saman á meðan hann nuddar hana og hún á erfitt um mál sökum stuna.
Í miðri setningu kyssir hann hana djúpt og þrýstir sér að henni. Hún finnur fyrir hörðum limnum upp við líkama sinn.
Hann snýr henni við og tekur hana aftan frá. Brjóst hennar nuddast upp við bakkann og háar stunurnar óma í loftinu.
Hann nýtur þess að ríða þessari æstu stelpu og horfir á hana engjast um undir sér. Hann stríkur yfir rassinn á henni og gælir aðeins við rassopið. Við það æsist hún mun meira svo hann stingur einum fingri varlega í þröngt gatið.
Hún ræður ekki við sig og fer hamförum undir honum, stynur og öskrar af unaði og skekur sér til og frá.
Þessi atlot hennar æsa hann mikið. Hann stingur öðrum fingri inn í hana og finnur að hún ræður vel við liminn.
Hann tekur liminn út úr píkunni og ber hann við rassinn á henni. Hún er alveg kyrr og bíður þess að hann þrýstir sér inn í þröngann rassinn. Hann þrýstir sér inn í hana og finnur hana opnast, varlega ýtir hann sér inn fyrir og fer að ríða henni hægt. Lágar stunur berast frá munni hennar.
Hann eykur hraðann og nýtur þess að finna þröngan rassinn herpast utanum liminn. Hann finnur að hann eigi eftir að fá það fljótt og brátt ræður hann ekki við sig og fer að hamast fast á þrönga rassinum hennar. Hún öskrar, unaðsblandið sársaukavein sker loftið. Hann sprautar rassinn á henni fullan. Dregur sig út úr henni og tekur hana í fangið.
Hann kyssir andlit hennar og hvíslar að henni ástarorðum. Hún hjúfrar sig að honum og nýtur þess að vera í fangi hans.
Saman liggja þau í pottinum og horfa á stjörnurnar sem að urðu vitni að þessum ástarfundi þeirra.
Ummæli