Örfantasía

Við göngum út í svalt loftið eftir skemmtilegt kvöld meðal manna. 

Ég teygi mig í höndina hans og finn fingur hans umlykja mína. Við göngum dálítinn spöl svona hönd í hönd, þangað til ég stoppa. Hann gengur áfram eitt, kannski tvö skref, en finnur hvernig höndin mín togar í sig. Hann snýr sér við og brosir þegar hann sér glettinn svipinn á mér. 
Hann kemur alveg upp við mig. Ég kyssi hann, ánægð og sátt við lífið og tilveruna. Hann kyssir mig til baka, ljúft og leikandi. 
Hann tekur blíðlega utanum höfuðið á mér og hendur hans gæla við mig. Þær finna sér leið niður á nakinn hálsinn og fyrirvaralaust herðir hann takið utanum hann. Ég finn hvernig hann lokar fyrir loftstrauminn og höfgi svífur á mig, á meðan varir hans gæla áfram létt og leikandi við mínar. Ég finn hvernig líkaminn gefur eftir og hugurinn sígur niður í djúp undirgefninnar. Þegar hann sleppir takinu dreg ég andann á lofti. 

Hann hlær og dregur mig að sér í þétt faðmald áður en hann grípur í höndina á mér og leiðir mig áfram.

Ummæli

Vinsælar færslur