Af fiski og kinki
Ég elska vinnuna mína. Ég er svo óendanlega heppin að vera að vinna með fólki sem er þenkjandi, skemmtilegt og hefur virkilega mikinn áhuga á því sem það er að gera. Mórallinn á vinnustaðnum einkennist af hlýju, brosum og hlátri. Það er BEZT!!
Einhverju sinni var mötuneytið með bleikan fisk í hádeginu. Umræðan við borðið mitt snérist upp í samanburð á bleikum og hvítum fiski, hvor væri betri? Síðan leiddist hún yfir í fiskrétti. Einn sagðist alls ekki borða fisk nema það væri eitthvað með honum, hrísgrjón, sósa og ostur breyttu öllu. Honum finndist eintómur hvítur fiskur ekki góður og sagðist ekki skilja fólk sem gæti borðað BARA hvítan fisk og kartöflur. Annar aðili við borðið snéri sér að honum og sagði ákveðinn "Við kinksjeimum ekki á þessum vinnustað!" Kímnin í röddinni og glettið blikið í augunum sýndu að hann var að gantast.
Ég skal játa að það fékk pínulítið á mig. Ég hef aldrei heyrt þetta orðfæri notað utan BDSM-heimsins.
Fyrir þau sem ekki vita, þá er þetta gripið úr ensku (e. kink-shame) og á við um að niðra eða gera lítið úr ákveðnum kinkum og raða þeim í einhverskonar goggunarröð. Sum kink eru þá meira kinky en önnur. Sum kink í lagi, og önnur ekki í lagi. Auðvitað ertu meira kinky ef þú iðkar viss kink en ekki önnur og jaðrar við að vera óæðri vanilla ef þú ert ekki nógu kinky.
Þannig viljum við ekki hafa þetta! Það er til þessi dásamlega skammstöfun til að sporna við þessum hugsanahætti: YKINMBYKIOK. Upp á enskuna þýðir þetta Your Kink Is Not My Kink, But Your Kink Is OK. Á okkar ástkæra ylhýra: Þitt kink er ekki mitt kink, en þitt kink er í lagi. Segir það sig ekki sjálft? Öll megum við vera eins og við viljum vera.
Aftur til baka í vinnuna mína. Það kom mér virkilega mikið á óvart að heyra þennan samstarfsaðila grípa í þetta orð. Það gustaði örlítið um skápinn minn (sem er harðlæstur í vinnunni), og ég velti því fyrir mér hvort hann væri líka kinky?
Eða... er kannski hipp og kúl og töff að grípa sér orðfæri perralinga?
Hvað haldið þið? Ég er með eigin kenningu sem ég segi frá næst.
Ummæli