Fullnægingar

Það er skrítið að í dagsins önn dettur manni margt í hug til að blogga um. En þegar maður er sestur fyrir framan tölvuna er allt horfið úr hausnum á manni. Eins og núna.

Var að vappa um síðuna og las yfir nokkur komment. Endilega kommentið eins og þið getið. Það er bara gaman að lesa þetta.

Fullnægingar gera lífið skemmtilegra

Lenti á mjög skemmtilegu spjalli í gær. Við ræddum m.a. um fullnægingar og að þær eru misjafnar eins og þær eru margar og munuinn á konum og körlum.
Karlana er hægt að strokka þangað til eitthvað kemur úr honum. Þannig er það í lang flestum tilfellum.
Þekki hinsvegar ekki margar konur sem ég hef rætt þetta við en svona virkar þetta ekki hjá flest öllum þeirra. Og svona virkar þetta alls ekki hjá mér!!
Svo ég ætla að segja ykkur leyndarmál.

Hvernig er best að fullnægja mér

Fyrir mér er huglæg örvun mjög mikilvæg. Klúrt tal æsir mig upp úr skónum sé það rétt gert, segðu það sem þér virkilega finnst en ekki koma með einhverja þreytta frasa. Annars er það bara hallærislegt.
Láttu mig líka heyra í þér, stunur eru geggjaðar.

Ekki vera með einhverja tippasýningu. Það er turn off. Láttu mig um að hrósa þér og huxa þú um að veita mér athygli.
Finnst líka ferlega asnalegt þegar tippum er otað að andlitinu á mér. Ef ég vil sjúga þig þá geri ég það. Annars skaltu bara biðja um það. Það er ekki líklegt að þú fáir nei.

Ekki ráðast beint á píkuna. Það virkar ekki og er turn off. Láttu mig engjast fyrst, stríddu mér, kysstu mig á bakið og brjóstin. Bakhlutinn á mér, frá öxlum og niður á hné, er rosalega virkur kynferðislega.

Það er gott að láta nudda snípinn en gerðu það laust. Annars er það óþæginlegt og veldur krampakippum í fótunum og það er vont. Ef það gerist ertu að gera eitthvað vitlaust.

Það er líka gott að vera sleikt, en taktu þér tíma í allt svæðið. Ekki fara beint á snípinn eins og smábarn á pela. Sleiktu, sjúgðu og nartaðu í barmana, nárann, og allt þar í kring.

Það er himneskt að vera puttuð. Og eina leiðin til að ég fái það er að vera puttuð og fá örvun á snípinn á sama tíma. Nuddaðu upp á við, örvaðu G-svæðið. Það þarf ekki að gera neitt sérstaklega fast eða hratt, en stöðug erting þar og á snípinn er unaðsleg og þá fæ ég það. Ekki gera bara inn - út - inn - út. Það er gott í smá tíma, en gerir ekkert til lengdar, nema auma píku. Að vera nudduð að innan er það sem virkar. Menn eiga það til að vera þreyttir í höndunum, sem er alveg skiljanlegt, en það þarf samt ekki að vera þannig. Það virkar betur á mig að taka því bara rólega heldur en að hamast eitthvað og ná einhverju tímameti. Fullnægingin verður dýpri og betri svona.

Að vera puttuð í rass er líka æðislegt. En það þarf sleipiefni, og það veltur mikið á dagsforminu hversu mikið eða lengi ég þoli það. Það er ekki hægt að vaða bara í rassinn eins og ekkert sé, það þarf undirbúning. Mikið sleipiefni, fyrst einn putta, síðan annan og þegar ég er búin að venjast því má fara að tala um eitthvað annað.
Samt sem áður er æðislegt að vera tekin í rass. Og það að vera puttuð í rass, sleikt og puttuð sendir mig beint í sjöunda himinn. Besta fullnæging sem ég hef fengið var þannig.

Ef einhver aðferð virkar, ekki breyta. Það er alveg bannað, því þá ertu aftur kominn á byrjunarreit. Þess vegna er mikilvægt að finna þæginlega aðferð sem þú getur haldið þig við lengi.

Venjulega heyrist vel í mér þegar ég er að stunda kynlíf. En ekki láta þögninga blekkja þig. Þegar ég segi ekki orð, gef ekki frá mér stunu og anda varla er mikið um að vera. Þá er ég að fá það. Líkaminn verður allur slakur og nautnin er á hámarki þangað til það verður sprenging.

Það þarf þolinmæði til að fullnægja mér. Ég fæ það t.d. ekki með einhverjum í fyrsta skipti sem ég sef hjá viðkomandi. Og ég er mjög lengi að fá það. Æsingur og stress virkar ekki. Ekki líka ætlast til þess að ég fái það og alls ekki ýta á eftir mér. Kynlíf er gott og fullnægingin er bara bónus.

Kúr eftir og helst fyrir líka er nauðsynlegt. Auglýsti eftir kúri í gær á msn og það er ótrúlegt að allir virðast halda að það sé samasemmerki á milli þess að kúra og ríða.
Það er hægt að kúra án þess að stunda kynlíf. En kynlíf án kúrs ætti ekki að vera til. Það er allavega mjög ófullnægjandi að mínu mati.

Ummæli

Einhver sagði…
Ég hef ekki gott af þessum lestri, no release... :/
Prinsessan sagði…
Tíhí... Lokaðu þá bara augunum eða lestu bara 3ja hvert orð.
Nafnlaus sagði…
Eins og talað út úr mínu hjarta....enda erum við ekki svo ósvipaðar í hugsun, ég og þú ;)

Vinsælar færslur