Klemmur og rassskellingar

Áii.... Mér er illt í geirvörtunum!!

Göngugarpurinn frá gærdeginum átti leið um Fjarkistan í dag svo við ákváðum að nýta tækifærið og leika.
Ég útvegaði okkur afvikinn stað til að vera á. Það hefði mátt vera aðeins rýmra um okkur og eins hlýrra, en það var samt sem áður leikið og það var gott, vont og rosalega gaman.

Við komum okkur fyrri í litlu herbergi og hann byrjaði á því að segja mér að segja á mig hálsól. Ég setti mína eigin hálsól á mig, því hún er nokkuð þæginleg og ekki of þröng. Þetta asnaðist ég við að segja og utanyfir hana fór þá önnur ól sem var vel hert og þrengdi full mikið að. Síða batt hann hendurnar á mér fyrir aftan bak og setti gag upp í mig. Þarna stóð ég eins og illa gerður hlutur á meðan hann rótaði í töskunni sinni.
Eftir smá tíma heyrði ég að andadráttur hans varð mjög skrítinn og þegar hann kom aftur í sjón var hann kominn með gasgrímu. Það var mjög ógnvekjandi að hlusta á andardráttinn í gegnum grímu og hlusta á deyft tal hans. Hann talaði til mín eins og ég væri eitrað tilraunadýr sem hann ætlaði að leika sér að. Hann fór síðan aftur að róta í töskunni sinni og ég heyrði í klemmum smella saman. Ég þoli ekki clover klemmur sem gerir þær að uppáhald fyrir sadista að setja á mig.
Hann fór að fitla við brjóstin á mér. Ég fann þrýstingin smátt og smátt aukast þangað til hann var orðinn vel mikill, vondur en samt ótrúlega góður. Þá fattaði ég að þetta voru ekki clover klemmurnar, heldur aðrar klemmur sem ég dýrka. Hann teygði sig í band og fór að binda um brjóstin á mér. Þegar hann var að binda hægra brjóstið á mér datt klemman af. Að sjálfsögðu var hann ekki ánægður með það og setti hana aftur á OG að var alveg ótrúlega vont!!
Síðan setti hann taum í ólina, teymdi mig út í horn og festi tauminn upp í gegnum lykkju og í bandið utan um brjóstin á mér. Þar gyrti hann niður um mig og sagði að það þyrfti fá refsingu fyrir að klemman hafi dottið af. 30 högg voru víst ásættanleg. En afturendinn á mér hefur það á tilfinningunni að þau hafi verið töluvert fleiri.
Ég fékk að finna fyrir píski, crop, beltum og höndinni á bakhlutanum á mér.. Þegar hann var búinn að rassskella mig vel náði hann í titrara og setti inn í mig og hélt áfram. Það er alveg hreint undaðsleg tilfinning að vera rassskellt með titrara inni í sér. Unaðurinn af hvoru tveggja magnar hitt upp. Á tímabili hélt ég að ég myndi fá það, en svo gott var það nú ekki.
Eftir rassskellingarnar faðmaði hann mig að sér og við spjölluðum saman og ræddum um pungbindingar. Vegna þess hve æðislegar mér fannst klemmurnar vera gaf hann mér þær og ég fór með þær á mér heim.
Núna áðan tók ég þær af mér og það var alveg ógeðslega vont. Ég er enn að jafna mig en sáraukinn minnir bara á góðan leik.

Kv. Prinsessa

Ummæli

Nafnlaus sagði…
[img]http://img235.imageshack.us/img235/3254/tek060208052e754ph.png[/img]

Vinsælar færslur