Leikur í gegnum netið

Undanfarið hef ég verið að stjórnast í manni í gegnum netið eða síma. Það er æðislegt :D

Ég gef mig út fyrir að vera undirgefna en drottnarinn blundar í mér og var leystur úr læðingi með þessum hætti.

Áðan fór ég á ircið og þessi tiltekni maður kemur inn stuttu seinna.
Hann talar eitthvað um að fara í gönguferð bundinn og ég spyr hvort við spjallverjarnir mættum fá að ráða hvernig hann fer. Hann er meira en til í það.

Upp úr krafsinu kom síðan að hann fór út að labba með risastórann butplug í rassinum, bundið um punginn og eistun bundin í sitthvora áttina með grönnu belti með göddum á, þau voru síðan bundin í band sem fór upp bakið og upp í 8 cm svera hálsólina svo þau strekktust aftur á við. Gaddahólkur með gadda innaná var um tippið og á geirvörtunum voru cloverklemmur. Grannt band var úr klemmunum, í gegnum lykkju á tippahólknum og aftur upp í hálsólina.
Svona fer hann út og þarf að labba í ca 30 mín til að komast á tiltekinn stað sem við vorum búin að ákveða.

Þegar þangað var komið kom hann sér fyrir, setti upp í sig kefli eða gag, setti hettu á sig sem er bara með tveimur götum til að anda í gegnum og ofan á það fór gasgríma. Síðan festi hann lásalykil við hálsólina og læsti hendurnar saman fyrir aftan bak. Þannig beið hann þangað til hann var sóttur af tveimur spjallverjum sem voru með í að ákveða hvernig hann færi út. Þau þurftu að leita að honum því aðeins við tvö þekktum staðsettninguna. En þau fundu hann eftir smá leit og leiddu hann í burtu.

Þessi hluti var ekki inni í áætluninni eins og þessi maður heyrði hana, eftir því sem hann best vissi áttu þau bara að koma og losa hann svo hann gæti farið heim aftur. En í staðinn leiddu þau hann í burtu og fóru með hann upp í bíl, án þess að hann gæti nokkuð gert í því, því hann hvorki sá né gat talað og með hendur bundnar fyrir aftan bak. Þau keyrðu með hann um og settu hann síðan út í Kópavoginum, losuðu hann og skildu hann þar eftir.

Svona hljóðaði áætlunin allavega. Sjálf er ég heima í fjarkistan og get ekki tekið þátt í þessu með þeim. En þetta á sér stað í bænum í þessum skrifuðu orðum.

Ég hlakka til að heyra frá þeim og þá fáið þið að vita meira.

kv. Prinsessan í Fjarkistan

- 20 mínútum seinna -

Jæja, ég var að heyra frá þeim. Þetta gekk allt saman rosalega vel og allir eru alveg í skýjunum. Það varð reyndar ekki svo að hann væri skilinn eftir í Kópavoginum og hann varð frekar stutt bundinn á staðnum sem átti að ná í hann, en þrátt fyrir það gekk þetta eins og í sögu.

Ummæli

Prinsessan sagði…
Bara að sjá hvort þetta virkar :D

Vinsælar færslur