Síðustu dagar

Ekki skil ég að maður nenni að keyra út í Fjarkistan kl. 3 að nóttu eftir spjall á netinu. En það kom samt sem áður fyrir á miðvikudagsnóttina.
Ég hafði verið að spjalla við strák á netinu og í gegnum spjall og fíflarí þá kom hann bara í heimsókn.

Hann er lyftingamaður, stór og mikill og rúmið mitt svignaði undan honum. Við spjölluðum feimnislega, en oftast endar þetta bara á einn veg og það gerði það líka hérna.
Allt byrjaði þetta með einum kossi. Hann kyssti mig og þar með var ekki aftur snúið. Hann gældi við mig vel og lengi og ég naut þess í botn. Það er undaðslegt að finna sterkar hendur hans fara um líkamann. Ég fann það vel hve sterkur hann er og það heillar mig, að geta ekki streist á móti.
Venjan er að í miðjum klíðum snúist leikurinn við og að ég fari að gæla við hann, en þegar ég teygði mig niður til að skoða og vera góð við vininn stoppaði hann mig af. Mér fannst það skítt. Enda langaði mig að gjalda í sömu mynt. Það kom síðan upp úr krafsinu að hann má ekki stunda kynlíf út af einhverju móti.
Þrátt fyrir það stóðst hann ekki freistinguna þegar á leið og við tókum hamförum í rúminu mínu. Persónulega fannst mér það vel þess virði að gleyma mótinu í smá stund.
Eftir það kúrðum við í fanginu hvort á öðru og endurtókum leikinn af og til.

Eftir þessa nótt tók við langur dagur. Ég fór í vinnuna og brunaði þaðan í bæinn til að fara í aðgerð. Það þurfti að taka af mér tánögl til að ná einum fæðingarbletti af og annar var tekinn af brjóstinu á mér. Ég var vel deyfð svo ég fann lítið til eftirá. Tók verkjalyf og seinnipartinn dreyf ég mig í leik með sadómasó.

Andrúmsloftið var mjög afslappað og þæginlegt. Við spjölluðum og dunduðum okkur við að finna það sem ég ætlaði að nota.
Ég stillti honum upp á spítu sem keðja var vafin utanum. Setti á hann hálsól og butplug og batt hvort tveggja upp í bita fyrir ofan hann. Hendurnar batt ég við belti um hann miðjann og setti á hann blindfold. Þannig fékk hann að standa nærri allan tímann.
Ég náði mér í stól, grannt band og settist fyrir framan hann. Síðan hóf ég að binda. Ég batt utan um eistun og tippið og batt eistun í sitthvora áttina, vafði um tippið og batt þetta allt í keðjuna á spítunni sem hann stóð á. Ég stekkti vel og strekkti síðan vel í bandinu sem var í ólinni og butplugnum.
Svona stóð hann teygður upp og niður í smá stund. Hann grátbað mig að taka butpluginn og ég hafði það ekki í mér að neita honum svo ég losaði hann. Í staðinn setti ég gag upp í hann, hettu yfir og gasgrímu þar ofaná.
Hann sá ekkert og heyrði lítið nema sinn eigin andardrátt sem var styrður sökum grímunnar og hettunnar.
Þá tók ég til við að losa tippið. Það hefur eflaust verið vont því það heyrðist vel í honum bak við grímuna.
Þegar það var laust strauk ég honum blíðlega. Tippið tók fljótlega við sér og varð beinhart. Ég strokkaði hann smá en hætti þegar ég sá að hann var að fá það. Svona gerði ég lengi og hann varð mjög pirraður til lengdar. Engdist um.
Að lokum nennti ég þessu ekki lengur og sagði honum að ljúka sér af sjálfur. Hann reyndi eins og hann gat, en gat ekki losað sig. Eftir smá tíma hætti hann að reyna og ýlfraði af vonsku.
Ég losaði þá beltið af honum og leyfði honum að losa sig. Hann vildi endilega fá klemmur á geirvörturnar og fékk það. Síðan fróaði hann sér og fékk það á mettíma.
Ég sat og fylgdist með. Hann losaði af sér grímuna og hettuna og tók gaginn út úr sér.
Maður sem kom undan hettunni var á svipinn eins og lítill strákur á jólunum. Þessi leikur var greinilega vel heppnaður.

Ég fór til bróðir míns og síðan í sumarbústað og sat með tánna upp í loft og var illt alla helgina.

Í gær var síðan þing. Ég hafði ekkert ætlað mér að fara, en af því að ég var í bænum gat ég ekki sleppt því. Það var ágætis þátttaka, mættu 11 manns í heildina og þar af 3 nýir og konur í meirihluta!
Þetta var mjög skemmtilegt þing og mikið rætt um framtíðina og hvað fólkið vill fá út úr UFSM þingunum, partýum og fleira.

Ummæli

Einhver sagði…
Takk fyrir helgina :D

Vinsælar færslur