Ófullnægð

Ég hafði tvö markmið þegar ég kom í bæinn í gærkvöldi.

Annarsvegar; fara í bíó með bestu vinkonu minni.

Hinsvegar; fá eins og einn almennilegan drátt eftir bíóið.

Það var gaman í bíó og æðislegt að hitta vinkonu mína, en drátturinn var enginn og ég er EKKI sátt.

Ég vissi um mögulega SEX stráka sem ég var tilbúin að hitta og eyða nóttinni með.
Nr. 1 var upptekinn vegna prófa. Það er alveg góð og gild afsökun.
Nr. 2 var þreyttur eftir vinnudjamm kvöldið áður.
Nr. 3 var með slökkt á símanum sínum. Maður stundar ekki villt kynlíf með talhólfi.
Nr. 4 var á deiti þegar ég hafði samband við hann. Það hefur bara einhver önnur fengið að ríða honum.
Nr. 5 svaraði ekki sms-unum sem ég sendi og ég þekki hann það lítið að ég þorði ekki að hringja.
Nr. 6 ætlaði að stunda brjálað kynlíf með mér restina af nóttinni. Var á leiðinni í bæinn að norðan, við skiptumst á æsandi sms-um og ég beið þolinmóð eftir drættinum í rúma 3 tíma. En heyrði síðan ekkert meir í kauða. Hann svaraði ekki sms-um né símanum þegar ég hringdi.

Nr. 6 hefur ENGA afsökun sem bjargar honum úr þessu klúðri. Nema mögulega að hann hafi lent í bílslysi. En ég tel það ekki mjög líklegt.
Því miður fyrir hann þá var þetta greddustand á mér svona one time only því venjulega vel ég rekkjunautana vel og með smá fyrirvara. Þessu má bæta við að ég er ekki hrifin af svona framkomu augljóslega og fyrirgef svona ekki auðveldlega.
Viðkomandi er algjörlega dottinn út af listanum yfir mögulega bólfélaga.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ekki er það gæfulegt; augljóslega hafa þessi "svokölluðu vinir" misst af miklu !!!

En hvað skal gera í dag; á aftur að reyna að safna liði þ.a. helgin líði ekki án þess að þú fáir almennilega drátt ??
Einhver sagði…
Gott á nr. 6 :P
Nafnlaus sagði…
Jæja, spurning um að skoða símann eftir helgina. Neibb, engin missed calls.
Oh well...

Vinsælar færslur