Krónísk gredda

Eftir kynlífslausa nótt og króníska greddu ákvað ég að þetta myndi ekki duga, svo ég skellti inn auglýsingu á einkamal.is.
Hún fékk mjög góð viðbrögð og uppúr krafsinu fann 3 álitlega menn. Einn sem var svo heppilega staðsettur í Keflavík og ég var einmitt að fara í partý út á nesið. Þegar leið á kvöldið kom í ljós að hann gat ekki tekið á móti mér... Ég var ennþá í sms-sambandi við gaurinn frá deginum áður og stefndi þá á að hitta hann, en það gekk ekki heldur. S
vo upp úr kl. 3 lagði ég af stað, gröð og ófullnægð í bæinn aftur og bjóst við að fara bara heim til mín, út í Fjarkistan, enda ekkert sem beið mín í bænum.
Af einhverjum ástæðum ákvað ég samt að hringja í Golfarann og viti menn; ég endaði heima hjá honum í afslöppun og æðislegu kynlífi. Svo gott að það er saga á leiðinni. ;)

Að partýinu. Þarna voru saman komnir nokkrir krakkar sem hafa áhuga á BDSM. Allir voru í góðu skapi og það var spjallað um allt og ekkert, þó aðallega BDSM og það sem því viðkemur.
Við spiluðum jenga með skemmtilegu BDSM tvisti svo maður gat lent í því að vera bundinn, rassskelltur, keflaður, niðurlægður og ég veit ekki hvað og hvað.
Ég lenti svipustríði við Patta sem mér tókst að tapa glæsilega. Í hefndarskini náði ég í crop og jafnaði leikinn. Upp úr krafsinu fékk ég tilboð sem ég gat ekki hafnað og á núna mína eigin svipu :D

Eftir þetta varð stemmingin afslöppuð og við spjölluðum um kynlíf og BDSM.
Þarna var fólk sem er mjög opið gagnvart kynlífi og þetta spjall endaði með því að það fjölgaði um tvo í bústaðarferðina.

Enn sem komið er vantar karlmenn því við bættust ein stelpa og einn strákar. Svo núna er staðan 4 konur og 5 karlar. Svo það vantar eins og 2 karlmenn og þá er ég sátt.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
hæ ég skal koma með í sumarbústaðinn ef það er vandamál með karlmenn
Nafnlaus sagði…
Anonymous: Ertu bi?
Nafnlaus sagði…
Það er nú oft talað illa um BDSM og þá sett í samhengi við hópkynlíf (allir með öllum). Þú ert ekki að hjálpa til við að eyða þeim fullyrðingum með þessum yfirlýsingum um þinn lífsstíl og hvernig þú tengir hann við BDSM.
Nafnlaus sagði…
Það er nú oft talað illa um BDSM og þá sett í samhengi við hópkynlíf (allir með öllum). Þú ert ekki að hjálpa til við að eyða þeim fullyrðingum með þessum yfirlýsingum um þinn lífsstíl og hvernig þú tengir hann við BDSM.
Prinsessan sagði…
Hvað með það þó maður sé ófeiminn við að skoða heiminn og prófa nýja hluti með nýju fólki?
Á meðan allir fara varlega og enginn er særður þá sé ég ekki að þetta sé slæmt fyrir þá sem vilja.
Ég er ekki að reyna að troða mínum skoðunum upp á fólk og það er ekki eins þú neyðist til að lesa bloggið.

Annars þá hef ég aldrei heyrt þessar fullyrðingar um BDSM og hópkynlíf og ég get ekki séð að ég tali á neinn hátt illa um BDSM. Heldur legg ég einmitt áherslu á að uppfræða fólk sbr. greinina um BDSM sem er undir "um mig"
Einhver sagði…
Anonymous písl, þú ættir í fyrsta lagi að koma með slíkar fullyrðingar undir nafni. Í öðru lagi þá er augljóst að þú étur upp kreddur og fordóma eins og nýorpin skít án þess að hugsa rökrétt um hlutina.

Vinsælar færslur