Litir

Þetta fann ég á blogginu hennar Rosasætu og vildi endilega deila því með ykkur.

Hver er uppáhalds liturinn þinn??

Gulur, rauður, grænn, blár, svartur, hvítur, fjólublár, brúnn, bleikur, appelsínugulur, grár

Mínir uppáhaldslitir eru rauður, brúnn og svartur og miðað við þetta fara þeir mér bara mjög vel.

Hvað er málið með feður? Afhverju eru mennirnir sem eru með litla krakka á öxlunum og óletta konu upp á arminn alltaf myndarlegustu mennirnir?
Ég skil það ekki. Ég fór í sund í dag og þetta virtist vera algilt lögmál þar.
Myndarlegu mennirnir voru með krakka eða ólétta konu eða hvort tveggja. Hinir sem voru einir og sér voru þeir sem var bara ekkert varið í.

Og lykt. Karlmanleg lykt kveikir í mér.
Það þarf ekki endilega að vera ilmvatn, þó þau skemmi ekki fyrir, bara þessi karlmannlega lykt sem kemur af mönnum.
Ekki misskilja mig og halda að ég fíli svitalykt því það geri ég ekki!!

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hvað er urlið á bloggið hennar Rosasætu?

Vinsælar færslur