NON Sexual

Ég skellti mér í Hrunalaug við Flúðir í nótt.
Mig greip þessi óstjórnlega löngum að smala saman fólki og fara þangað.
Fólk er alveg ótrúlegt!! Ég var á netinu og bauð hinum og þessum að koma með, nánast bara öllum sem ég var að tala við. En ævintýraþráin var ekki meiri en sú að þegar fólk vissi að ég ætlaði mér ekki að ríða öllum sem kæmu með þá nennti það ekki að fara.

En við fórum allavega fjögur. Ég og þrír strákar. Það var rosalega gaman... Tróðum okkur ofaní þennan pínulítla pott og höfðum það kósí, drukkum bjór og spjölluðum þangað til dagur reys í austri.

----

Ég verð að viðurkenna að ég er sjúklega meðvirk með þessu bloggi. Kíki alltaf inn á könnunina og verð alveg heiftarlega móðguð þegar ég sé að einhver ætlar EKKI að kíkja aftur inn á bloggið mitt.
Ég vil meina að hér sé eitthvað fyrir alla, þó ekki sé nema smá fróðleiksmolar.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Takk fyrir nóttina. :)
Einhver sagði…
"En ævintýraþráin var ekki meiri en sú að þegar fólk vissi að ég ætlaði mér ekki að ríða öllum sem kæmu með þá nennti það ekki að fara".

LOL, sumir eru einfaldlega svolítið sorglegir í greddu sinni.
Prinsessan sagði…
Takk fyrir mig...
Ég skemmti mér rosalega vel.
Nafnlaus sagði…
Skemmtileg nótt hjá þér :)

Og varðandi commentin.. þá er ég sammála .. ég verð ferlega svekkt ef fólk er eitthvað má móti eða hneykslað á því sem ég er að gera.. en við verðum að læra að láta þetta ekki hafa áhrif.

Það eru bara einfaldlega ekki allir jafn skemmtilegir og við ;)
Nafnlaus sagði…
Það er satt; heimurinn væri betri ef allir væru jafnskemmtilegir og þið.

Haldið áfram að skemmta okkur sem lesum skrifin ykkar.
Nafnlaus sagði…
I was there (allavega einhver partur af mér) Þreytan getur tekið á eftir villta londonferð...

Vinsælar færslur