Maí-þing UFSM

Ég missti af því og er ekkert sérlega hamingjusöm núna.

Málið er að hér í Fjarkistan eru vorverkin á fullu, ég var í borginni í dag og upp úr hádegi var hringt í mig ég var vinsamlegast beðin um að drulla mér heim. Ég hafði séð fyrir mér rólegan dag í búðarráp og fara síðan á þing og mögulega leika eftir þingið. En nei. Ég þurfti að fara beinustu leið heim og þegar heim var komið komst ég síðan að því að allt sem átti að gera var búið og gert og ég gat bara borað í nefið á mér. Svo í staðin fyrir að hafa farið á þing í dag sat ég heima hjá mér og gerði ekkert af viti.

nett fúl

Ummæli

Vinsælar færslur