Sveitastrákur

Ég er svo þreytt að ég er að leka niður. Núna óska ég þess heitt að mér finnist kaffi ekki ógeðslegt.

Allavega... Ég fór í bæinn á laugardagskvöld. Ég og vinur minn leigðum videospólu sem við gáfumst síðan upp á.
Þá var klukkan orðin margt svo ég skellti mér í könnunarleiðangur í annað sveitarfélag til þess að kíkja á strák sem mér leyst vel á.
Ég svaf svo gott sem ekkert þessa nótt. Í staðinn eyddi ég henni í spjall, kúr og gott kynlíf með þessum strák. Hann braut þá reglu að ég fæ ekki fullnægingu með einhverjum í fyrsta skiptið og á sunnudag sveif ég á fullnægingarskýi.

Hann er sveitastrákur sem er bústettur á stór-Hafnarfjarðarsvæðinu. Ég ætla að draga hann með mér í sumarbústaðinn og hlakka mikið til þess. Er nú þegar búin að panta kúr með honum og allez.

Í gærdag fékk ég sms frá honum þar sem hann spurði hvernig hann hafi verið. Ef maður ætti að gefa honum einkunn þá fengi hann ríflega sjöu.
Það býr margt í þessum strák og með tíð og tíma færi hann upp í tíu. Hlakka til að komast þangað.

Ummæli

Vinsælar færslur