Freakout

Freakout var í gærkvöldi.
Það var æðislegt.

Fyrst verð ég að segja að þetta hafi verið pínu menningarsjokk að sjá hvað margir voru mættir í fetishklæðnaði. Ég varð pínu feimin en það rann fljótt af mér og ég skemmti mér konunglega í hópi góðra manna og kvenna.

Það er skrítið hvað margir leynast hér og þar sem hafa áhuga á BDSM.
Þarna var ótrúlegasta fólk sem ég þekki en hafði ekki hugmynd um að væru fyrir þetta. Svona uppgvötanir finnast mér mjög skemmtilegar og það er bara gaman að komast að því að maður getur talað við ótrúlegasta fólk um ótrúlegustu hluti. S.s. hvað geriri góðann flogger góðann?

En hræðslan við að mæta skók margan mannin og ég sá að færri höfðu mætt en ætluðu sér. Það finnst mér synd.
Að vissu leiti skil ég þessa feimni í fólki. Hvað nú ef einhver sér mig svona? Hvað ef ég þekki einhvern sem er þarna?
En þetta er áhætta sem mér finnst þess virði að taka. Og ef einhver er þarna sem maður þekkir þá er sá hinn sami eflaust að huxa það sama.
Maður verður bara að kyngja stoltinu og feimninni og taka skrefið.
Þegar það er tekið opnast nýr heimur.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Takk fyrir mig esskan! Skemmti mér konunglega, gaman að hitta ykkur tvö, og Eva voða sæt í fyrsta skipti meðal fólks :)
Nafnlaus sagði…
Og fá góðir meðlimir Kynlif.is ekki að sjá einhverjar myndir af þessu :)

K.v
Splendor
Nafnlaus sagði…
Þetta var yndislega gaman :D

Ég var að missa mig þarna með svipuna :D Enda auðveldast að næla í Söndru þannig... gefa henni smá smell þá átti maður athygli hennar ;)

Vinsælar færslur