Loksins Loksins

Ég er flutt.
Ég er svo innilega flutt að það er búið að skrifa undir leigusamning og netið er komið í gagnið og allt. Það verður meira að segja innflutningspartý á morgun.

Ég hef verið að dunda mér við að skrifa sögur svona netlaus svo það eru komnar tvær nýjar sögur. Þær eru Draumurinn og Húsþrællinn.

Það hafa margir spurt mig að því hvort sögurnar mínar séu sannar og hverjar þeirra séu það, til að einfalda mér lífið skellti ég þeim í tvo flokka: Sannar og skáldaðar.

Brátt kemur ekki betri tíð.
Og ég get lofað ykkur því að ég mun verða duglegri að blogga núna og semja sögur.

Ummæli

Vinsælar færslur