Útrás

Ég veit ekki með aðrar konur en það fer rosalega illa í mig að vera mjög gröð og fá ekki réttu útrásina. Ef ég fæ ekki mitt verð ég pirruð og ekkert annað kemst að en að losa um þessa greddu.

Í dag fórum við HerraG í Kolaportið. Áður en við fórum var smá upphitun fyrir kvöldið og það geggjaða kynlíf sem við ætluðum okkur að stunda. Ég beygði mig fram á rúmið og hann stóð fyrir aftan mig og tók mig fast og harkalega. Góð byrjun.
Við fórum í Kolaportið og röltum þar um í smá tíma og fórum síðan heim að horfa á video. Ég hef þá furðulegu tilhneigingu að fara að gæla við mig þegar ég horfi á sjónvarpið og þetta var engin undantekning. Fljótlega voru báðar hendurnar á mér komnar á kaf ofaní nærbuxurnar þar sem ég sat og horfði á hryllingsmynd. Eftir hryllingsmyndina var klámmynd sett í tækið og ég hélt áfram að fróa mér en fékk þá hjálp frá HerraG. Þá tók ég eftir þesum pirringi, ég var orðin ógeðslega gröð og hafði verið mjög nálægt því að fá það nokkrum sinnum áður og núna vildi ég bara fá mína fullnægingu. HerraG gerði ekki nákvæmlega það sem ég vildi svo ég reyf af honum titrarann og hélt áfram sjálf. Ég fékk smá samviskubit og bauð honum aftur að hjálpa mér en það fór á sama veg. Fljótlega var ég búin að ýta honum frá mér því mér fannst hann bara seinka fullnægingunni frekar en eitthvað annað.
Í heildina tók það mig 3 klst að fá það og það var alls ekki fyrirhafnarinnar virði. Heldur ekki þess virði að vera pirruð út í hjálpsaman kærasta sem að sjálfsögðu varð bara pirraður út af pirringnum í mér.

Ekkert geggjað kynlíf í kvöld

Ummæli

Vinsælar færslur