Brjóstagælur

Já, ég er með stór brjóst. Þau sæma sér vel og ég væri ekki til í minnka þau. En samt öfunda ég þær konur sem eru með lítil brjóst og þurfa ekki að vera ALLTAF í brjóstahaldara.
Það væri lúxus að geta gengið niður Laugarveginn eða í Kringlunni með ber brjóstin undir þunnum bol... Án þess að fá í bakið af því. Geta hlaupið um í pínulitlu bikiníi niðri á strönd án þess að hafa áhyggjur af því að húðin slitni við skoppin. Svo ég tala nú ekki um hvað það er vont. Lúxus sem konur með lítil brjóst geta leyft sér.
En litlu brjóstin sóma sér ekki eins vel í fallegum brjóstahaldara, þau fylla oft ekki alveg upp í hann og þær konur sem eru með lítil brjóst nota oft brjóstahaldara með fyllingu til að það lýti út fyrir að það sé eitthvað utan á þeim.
Brjóstin eiga að fylla vel upp í brjóstahaldarann og virka þrýstin og falleg, kynþokkafull. Segja að hér sé alvöru kona á ferð. Ég myndi ekki vilja skipta á því fyrir lítil brjóst.

En færslan heitir brjóstagælur.
Um daginn var kærasinn minn að gæla við brjóstin á mér... Þau hafa oft orðið útundan í okkar kynlífi og þá komst ég að því að ég sakna þess ekki.
Hann notaði þessar týpísku gælur. Hann sleikti þau, kyssti og nartaði aðeins í geirvörturnar og það var voðalega ljúft. En einhvernveginn ekki kynferðislega æsandi fyrir mig.
Þó svo að hann gerði þetta allt mjög vel þá varð það ekki til þess að mig langaði að ríða... og er það ekki tilgangurinn með þessu? Mig langaði miklu frekar að strjúka honum um bakið og kúra, kyssa og kela.
Það er asnalegt að vera með ókynferðislegavirk brjóst.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Mér finnst þú nú pínu vera að brjóta þína eigin reglu með því að segja að það sé asnalegt að vera með ókynferðislega virk brjóst. Ég meina mér finnst svona þemað í blogginu þínu vera mjög mikið: það er alveg sama hvernig kynlíf þú fílar, það sem virkar fyrir þig virkar fyrir þig og þá er það bara frábært. Það er ekki til neitt rangt. Svo ef brjóstin þín eru ókynferðislega virk þá er það bara þannig og kærastinn þinn verður bara að nota aðrar aðferðir, og ég held að hann eigi alveg nóg af þeim í pokahorninu svona af fyrri færslum að dæma :)
Nafnlaus sagði…
Já, annað :P
Ég er ekki með mjög stór brjóst en ekkert pínulítil heldur og ég er líka ánægð með mín akkúrat eins og þau eru og myndi ekki vilja hafa þau stærri eða minni. Bara svona sjónarhorn fyrir konur með lítil brjóst. Það er alveg hægt að vera sátt við þau þó þau séu ekki stór. Aðalmálið er náttla að vera bara ánægð með þau eins og þau eru (eins og allt annað). Þú ert með stór brjóst, ég er með lítil brjóst og við erum báðar sáttar. Svo það er bara frábært :P
Nafnlaus sagði…
Auðvitað á hver og einn að stunda kynlíf eins og sér hentar.
En maður þarf að læra inn á sjálfan sig til að vita hvað maður fílar og fílar ekki. Ég hélt að ég væri eins með mínar brjóstagælur, en komst að því að svo er ekki.
Ég þarf að fá harðari meðferð til að það virki almennilega kynæsandi á mig.

Og það að vera sáttur við sjálfan sig eins og maður er, það er frábært og á þessum tímum tískustrauma er það mjög óalgengt.
Nafnlaus sagði…
Satt er það, ég held að ég sé óvenju sátt við sjálfa mig og er mjög ánægð með það. Það er bara nýlega sem það gerðist að ég svona næstum sætti mig við sjálfa mig eins og ég er og það er mjög frelsandi tilfinning. Ég óska öllum að upplifa þetta líka. Þetta snýst ekki um að breyta sér heldur að sætta sig við sjálfan sig eins og maður er.
Nafnlaus sagði…
Sammála undirgefinni...Ég efast um að þetta sé meint illa, en hlutir eins og þetta:

"Brjóstin eiga að fylla vel upp í brjóstahaldarann og virka þrýstin og falleg, kynþokkafull. Segja að hér sé alvöru kona á ferð. Ég myndi ekki vilja skipta á því fyrir lítil brjóst."

...virka ekki mjög. Hljómar eins og verið sé að segja að kona með minni brjóst sé þar af leiðandi minni kona. (Þar að auki fylla lítil brjóst alveg upp í brjóstahaldara og eru oftar en ekki stinnari og blablabla)

Brjóst eru af ýmsum stærðum... sum eru lítil og perky og önnnur eru stór og þung og sum þar á milli. En hvað sem því líður finnst mér hegðun konunnar oftast ráða mestu um það hversu mikil eða alvöru kona er þar á ferð.

Annars alltaf gaman að lesa svona vangaveltur:)
Nafnlaus sagði…
Ég eins og margir aðrir Karlmenn er brjósta maður... og fyrir mig þá er þetta góð færsla að mörgu leiti.

Persónulega þá er ég ekki að fatta árásargirnina hjá stelpunum hérna fyrir ofan, þegar að ég las þetta þá fanst mér eins og þetta væru hugsanir þina um hvernig að þú upplifir þín brjóst og hvaða tengingar þú hefur varðandi þau innst inni. Ekki árás á konur/stelpur með lítir brjóst. En hvað veit ég.

Annars fanst mér leitt að það skyldi bara koma upp móður eða kúr tilfynning hjá þér við það að kærastinn var að gæla við þau. Hvað með að fá kallinn bara til að vera harðari? eins og vægt "Tit Torture" eða flengja þau smá með einhverjum áhöldum (litlum flogger, beltis enda o.s.f.)

Ekki að þetta komi mér neitt við, mér er bara illa við að vita af fallegum brjóstum sem að eru ekki nýtt! :)
Nafnlaus sagði…
Þetta voru nú ekki neinar árásir. Ekki af minni hálfu allavegnna. Bara umræða og vangaveltur.
Nafnlaus sagði…
Ég á við sama "vanda að stríða" þegar verið er að "vesenast" í brjóstunum á mér finn ég ekki fyrir neinu, kynferðislegu...

ætli þetta sé algengt vandamál hjá konum? :P
Nafnlaus sagði…
Nei mér finnst nú soldið hart að kalla mig árásargjarna. Þegar ég les aftur það sem ég skrifaði sé ég að ég hljóma kannski pínu eins og ég sé í vörn, en það er alls ekki raunin. Mér finnst ég ekki þurfa að verja brjóstin mín því eins og ég sagði þá er ég sátt við þau og þarf ekki að réttlæta útlit þeirra fyrir öðrum eða sjálfri mér. Bara að koma minni skoðun á framfæri, sem er sú að bæði stór og lítil brjóst geti verið falleg :)
Nafnlaus sagði…
Hi.. Heyrðu, þetta er bara sú allra skemmtilegasta síða sem ég hef lesið yfir ævina...
Frábær penni og örugglega hin besta hjásvæfa.. haha.. bara djók. En frábær þú..
Stella.
Nafnlaus sagði…
Brjóst eru frábær sama hvort þau eru stór eða lítil mestu máli skiftir að konan sem er með þau sé meðvituð um þau og viti hvað hún vill láta með þau hver karlmaður sem er elskar að láta vel að brjóstum (sama hver stærðin er) ef konan nýtur atlotanna

Vinsælar færslur