Barnaníðingar

Þeir leynast hér og þar og allsstaðar!!! Er það næsti maður við þig? Eða þar næsti?

Þetta er allavega mjög mikið í umræðunni þessa dagana og fólk virðist vera að vakna af löngum svefni til að sjá að þetta er allsstaðar og börn geta verið í hættu heima hjá sér. Fólk vill herða refsingar við þessu og ég veit ekki hvað og hvað og það veit varla í hvorn fótinn það á að stíga svo hneikslað er það.
En þetta er búið að vera til staðar allan þennan tíma, það er bara núna fyrst sem fólk er að opna augun.

Ég ætlaði ekki að fara að predíka svona og ætla alls ekki að viðra mínar skoðanir á þessu máli. Það væri efni í doktorsritgerð og eflaust eitthvað sem enginn nennti að lesa.

Hinsvegar datt mér lag í hug sem er stundum sungið á leikskólanum mínum.


Stína og brúðan

Á kaupmanninn rétt við búðarborðið

svo brosfögur horfði Stína:

„Ég ætlaði bara að kaupa klæði

í kjól á brúðuna mína.”


„Og hvaða lit viltu, ljúfur” sagði’ hann,

„á litlu brúðuna þína?”

„Hvað, auðvitað rauðan, já ósköp rauðan!”

með ákafa sagði hún Stína.


Hann brosandi fór og klippti klæðið.

„Hvað kostar það?” spurði Stína.

„Einn koss,” hann svaraði, „kostar línið

í kjól á brúðuna þína.”


Í búðinni búðinni glumdi við gleðihlátur

er glaðlega sagði Stína:

„Hún mamma kemur í bæinn bráðum

og borgar þá skuldina mína.”



Þarf ég að skýra þetta eitthvað nánar?

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Þessi vísa er reyndar ekki alslæm því Stína hefur vit á því að það á ekki að leyfa ókunnugum karlmönnum að kjassast í sér og svo segist hún líka ætla að segja mömmu sinni frá "verðinu" sem er mjög gott.

Stína er greinilega vel upp alinn og hefur verið vöruð við, enda ekki vanþörf á.
Nafnlaus sagði…
Fyrir mér snýst þetta bara um að upplýsa þessa krakka. Á að vera hægt að koma í veg fyrir að 14 ára krakkar hafi áhuga á mönnum á fertugs- eða fimmtugsaldri.
Að útrýma barnaperrum eða eitthvað álíka er hins vegar bara ekki hægt.
Nafnlaus sagði…
haha, ég hef einmitt oft pælt í þessu lagi, mér líður alltaf jafn furðulega að syngja það. Samt finnst mér þetta alltaf jafn gott feis hjá stelpunni, hún kann greinilega að svara fyrir sig.

Vinsælar færslur