Kertavax kítlar

Seint blogga sumir...

... en blogga þó.

Það hefur ótrúlega lítið gerst undanfarið. Veikindi og túraleiðingar og fæst frásögufærandi.

Við HerraG tókum eitt gott BDSM session um daginn. Hann batt mig ofaní rúmið og gældi við mig lengi vel. Ég var farin að iða öll af greddu. Síðan náði hann í kertavax og hélt því hátt yfir mér og lét það drjúpa á mig. Ég verð að segja að það var ótrúlega æsandi að sjá hann standa valdsmannlega yfir mér með logandi kertið. Síðan fór vaxið að drjúpa. Þar sem ég hef örsjaldan prófað kertavax áður vissi ég ekki alveg við hverju ég átti að búast. Það lenti á síðunni á mér. Heitt, stingandi, ertandi, en ótrúlega gott. Hann lét fleiri dropa falla á mig... Á magann á mér, síðuna, brjóstin, skapabarmana, lærin... Ég naut þess í botn. En þegar hann lét nokkra dropa drjúpa á magann á mér þá fór mig að kítla. Mig kítlaði það mikið að ég hreinlega réð ekki við mig og lá þarna bundin og kefluð í hláturskrampa. Ég hló það mikið að ég fór að tárast og engdist um. HerraG skipaði mér að hemja mig, en um leið og hann fór að láta drjúpa á mig aftur sprakk ég.
Þrátt fyrir hláturinn þá skemmti ég mér mjög vel, en HerraG leit ekki á það sömu augum svo hann var fljótur að losa mig og hætta leiknum í refsingarskini.

Ummæli

Einhver sagði…
Æjæ, jæja, hann forðast kannski mallann næst. :)

Vinsælar færslur