Fullnæging

Ég fékk frábæra fullnægingu í gærnótt og mig langaði að skrifa um hana, lýsa henni.

Hún byrjaði með tungu hans við snípinn.
Kítlandi, ertandi,
tilfinning sem leiddi inn í leggöng,
þaðan smátt og smátt upp kviðinn,
niður lærin,
frumu fyrir frumu.
Andardrátturinn varð ör og djúpur.
Blóðið sauð í æðunum.
Geirvörturnar sperrtust út í loftið.
Hárin risu á heitri húðinni.
Roði færðist í andlitið
og svitinn perlaði á enninu.
Augun lygndust aftur
og stunur liðu af þurrum aðskildum vörunum.
Eftirvæntingin fyllti andrúmsloftið,
spenna,
æsingur,
frygð.
Hugurinn á fleygiferð,
langt frá líkamanum,
en þó svo nálægt.
Eilífðin lá á milli höfuðs og skauts
uppfull af nautn og stækkaði óðum.
Unaðurinn flæddi þar inn og fyllti hana
uns hún sprakk í algleymingi.
Eins og rafstraumur færi um líkamann,
eins og flóðbylgja brysti.
Krampi...

STOPP.
Get ekki meir.

Dregin aftur til meðvitundar.
Fullnægingin hjaðnar í líkamanum
uns ekkert er eftir en minningin.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Frábær lýsing.

Vinsælar færslur