Þrisvar sinnum

Ég hef heyrt því fleygt fram að ef að maður prófi eitthvað nýtt í kynlífinu eigi maður alltaf að gera það þrisvar sinnum.

Í fyrsta skipti er þetta alveg nýtt og þið eruð kannski óörugg á því og vitið ekki alveg hvernig þið eigið að gera þetta. Tilfinningin og upplifunin alveg ný og þið kannski örlítið stressuð í ofanálag.
Í annað skiptið er þetta ekki alveg nýtt, en samt er ekki komin nein reynsla og smáatriðin kannski ekki alveg á hreinu og kannski pínu óöryggi í ofanálag.
Í þriðja skiptið eruð þið oftast komin með þetta á hreint og vitið hvernig best sé að haga þessu og getið farið að njóta þess í botn.

Ég reyni allavega alltaf að prófa það sem nýtt er fyrir mér þrisvar sinnum áður en ég afskrifa það. En oftast geri það miklu oftar en þrisvar.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Held að þetta sé nokkuð góð hugmynd að prufa þrisvar áður en maður dæmir.
Lenti í því með ex að við prufuðum nýtt og líkaði ekki vel. Prufuðum svo ekki aftur fyrr en löngu seinna og þá var það svolítið spennandi, en eftir þriðja og fjórða skiptið varð það svo ómissandi hluti af kynlífinu :-)

Vinsælar færslur