Leikföng

Ég fór til Svíþjóðar í sumar, sem er eiginlega ekki frásögu færandi.
Ég og kærastinn minn vorum búin að finna þessa æðislegu verslun með leður, fetish og BDSM vörum sem var síðan bara ekkert á staðnum sem gefið var upp á netinu. Hálfur dagur í Stokkhólmi var bara fíluferð.

En við fundum aðra búð og hún var æðisleg!!
Þar keypti ég mér egg og titrara sem bæði titrar og snýst í hringi. Hann er bara bestur!! Eggið er með þæginlega stamri áferð og pínulitlu skafti sem gerir það mun auðveldara að halda á því. Snilldin ein.
Bæði þessi leikföng og mörg önnur sem mig langaði í voru frá framleiðanda sem kallast Toy Joy. Allar vörurnar frá þeim virðast skemmtilegar, vandaðar og huxaðar fyrir konur. Ég mæli eindregið með þessum vörum, en því miður virðast þær ekki fást hérna á fróni.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
hugsa.... ekki huxa.... plís.

Vinsælar færslur