Saflát

Ég var að grufla í tölvu litla bróður míns um daginn og rakst þar á klámefni. Auðvitað eiga 18 ára strálar klám, svo það kom mér ekkert á óvart.
Í forvitni minni kíkti ég á eina mynd sem kallaðist.... man það ekki, en það var eitthvað um fullnægingar kvenna. Þetta voru stutt myndbrot af konum sem fengu saflát með tilheyrandi látum og gusugangi.

En þarna er einn hængur á, þó svo að konur fái saflát þarf samt ekki að vera að þær séu að fá fullnægingu. Ég þekki það af eigin reynslu að í mögnuðu kynlífi með mikilli ertingu og örvun get ég fengið saflát, án fullnægingar. Í rauninni fylgist þetta tvennt alls ekki að hjá mér, ég fæ annarsvegar saflát, sem gerist mjög sjaldan, og hinsvegar fæ ég fullnægingu, sem gerist mun oftar.

Margir karlmenn verða ferlega montnir ef að konan sem þeir eru með fá saflát. Það heyrir nefninlega undantekningum til.
Saflát á sér stað þegar konan er mjög örvuð, þá gefur kirtill rétt fyrir innan leggangaopið frá sér tæran vökva, það kemur mis mikið eftir konum, frá því að vera nokkrir dropar upp í stóra gusu.
Sumar konur segja að tilfinningin fyrir saflát sé líkt því að þær þurfi að pissa, þá vilja þær oft fara að halda í sér og það getur skemmt allt saman. Ég aftur á móti kannast ekki við þetta, saflátið kemur bara, án alls fyrirvara og oft á hátindi örvunarinnar, þegar allt er í botni.
Til að ná fram safláti skiptir mestu máli að vera þolinmóður. Þetta er fyrirbæri sem kemur ekki eftir pöntunum. Eins og ég hef sagt, mikil örvun, gredda og mikill tími fer í að kalla fram saflát, og eins og með svo margt, þá má ekki pressa á konuna. Það virkar álíka vel og hreinlega banna henni að fá saflát.

Ummæli

Vinsælar færslur