Drottnun

Ég er búin að taka að mér undirgefinn einstakling til reynslu. Þetta er eiginlega alveg ný reynsla fyrir mig, því þó svo ég hafi tekið session sem drottnandi aðili og við höfum verið með húsþræl, þá hef ég aldrei verið með svona þræl.

Ég hef verið svolítið lengi að spjalla við þennan strák, einmitt í þessum hugleiðingum. En það var samt ekki fyrr en núna um síðustu helgi að ég ákvað að láta til skara skríða og við HerraG hittum kauða.
Okkur leyst ágætlega á hann og HerraG samþykkti hann alveg sem minn undirgefinn (e. sub), og þar af leiðandi sinn undirgefinn.

Það er alveg ný tilfinning fyrir mig að vera drottnandi í öllum samskiptum við viðkomandi. Skrítin en samt góð tilfinning. Hann lætur mig finna að ég er honum æðri í öllu og sýnir mér skilyrðislausa virðingu.
Stundum finnst mér ég vera berskjölduð, enda óvön svona athygli, en öðrum stundum líður mér eins og heimurinn sé minn. Múhahahaa...
Ég skemmti mér konunglega við að skipuleggja session fram í tímann og spá og spekúlera hvað ég vilji virkilega fá út úr því að eiga undirgefinn.

Ég held að ég sé pínu sadisti....

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Langar bara að spruja þig að ganni...myndir þú einhverntíman borga fyrir kynlíf? eða þiggja greiðslu? kannski geturu bloggað um þetta?

Vinsælar færslur