2ja

Þetta blogg er orðið tveggja ára og án þess að ég tæki eftir því!

Ég var að gramsa á því núna áðan og tók eftir því að fyrsta færslan er síðan í febrúar 2006, og síðan að nýjasta færslan er einmitt síðan í febrúar 2008.

Þegar ég byrjaði að blogga var það bara af því að mig langaði að tjá mig. Það er óendanlega gott að geta blaðrað í skriflegu máli um allt og ekkert fordómalaust.

Talandi um það.

Ég kíki ennþá reglulega inn á einkamal.is. Þar er nottla hægt að finna landsins mestu perra í tonnatali.... Perrar eru besta fólk. Allavega lít ég á sjálfa mig sem besta fólk og perra, ef ekki perra þá allavega mjög klámfengna manneskju.

Þar var maður sem spurði hvort ég hefði áhuga á að pissa á sig.
Ég get ekki sagt að ég hafi brennandi áhuga og löngun til þess að pissa á einhvern mann. En ég get samt sagt að ég met fólk mikils sem er tilbúið að tala opinskátt um svona fantasíur sem teljast ekki eðlilegar. Margar af mínum fantasíum er ekki eitthvað sem flestir vilja gera. En þó er G ótrúlega duglegur við að framkalla þær, að sama skapi væri ég meira en til í að framkvæma alla fantasíur G sem ég mögulega get, þó svo að þær séu ekki endilega eitthvað sem mig dauðlangar að gera.

Nýjasta fantasían mín er að vera hlutgerð og lánuð. Að vera leikfang og eign G sem hann getur lánað þegar og þeim sem hann vill.

Eitt kvöldið er mér sagt að taka mig til. Ég er send í sturtu, á að raka mig og hafa mig til. Ég geri það að sjálfsögðu. Síðan setur hann ólar á mig, hálsól, hand og ökla. Hann setur gag upp í mig og taum í hálsólina og lætur mig sitja á púða á gólfinu við hlið hans á meðan hann horfir á sjónvarpið eða hangir í tölvunni. Eftir smá tíma kemur maður inn. Þeir ræða saman um mig, hvað má og hvað má ekki gera þarna beint fyrir framan mig, eins og ég skipti ekki máli. Síðan lætur G manninn hafa tauminn og maðurinn fer með mig inn í herbergi og fær að gera það sem hann vill við mig. Að því loknu setur hann gagið aftur upp í mig og setur tauminn í ólina og skila mér aftur til G.

-DREYM-

Ummæli

Vinsælar færslur